„Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 14:15 Þessir stuðningsmenn Tottenham voru með einfalda beiðni til leikmanna. Sýn Sport Stuðningsmenn Tottenham eru farnir að grátbiðja liðið um að skora mark, eftir að hafa mistekist að skora í fyrstu fjórum umferðunum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Aron Jóhannsson kallar eftir meira hugrekki frá nýjum stjörnum liðsins. „
Þeir eru að ganga í gegnum svartan tíma núna,“ sagði Aron í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport þar sem hann sýndi dæmi um margt sem betur mætti fara hjá Tottenham-liðinu. Brot úr þættinum má sjá hér að neðan. Klippa: Messan - Getuleysi Tottenham fremst á vellinum Eftir markalaust jafntefli við Nottingham Forest fyrir viku, þar sem Tottenham átti ekki skot á mark allan leikinn, átti liðið ekki heldur skot á mark í fyrri hálfleik gegn Everton á laugardaginn. Tvö skot hittu á rammann í seinni hálfleik en aftur varð niðurstaðan markalaust jafntefli og er Tottenham með tvö stig í 17. sæti úrvalsdeildarinnar, á sama stað og liðið endaði síðasta vor. „Þetta er bara ekki í lagi hjá félagi eins og Tottenham. David Moyes skaut aðeins á hve miklum peningum þeir hafa eytt en ef maður pælir í því þá er Solanke samt eini framherjinn þeirra,“ sagði Aron. „Sjáum alveg að hann getur þetta“ Tottenham sparaði ekki peningana í sumar og sótti leikmenn á borð við Sandro Tonali, Mateus Fernandes, Sávio og Omar Marmoush, auk þrautreyndra varnarmanna úr ensku deildinni. Fram á við gengur liðinu hins vegar bölvanlega og spurning hvort hægt hefði verið að leysa betur mál Richarlison sem tjáð hefur verið að megi finna sér nýtt félag. „Hann væri töluvert betri en enginn þarna núna. Hann skapar alltaf usla. En þessir nýju leikmenn sem hafa komið inn, Marmoush, Tonali, Fernandes, þeir hafa ekki „syncað“. Það er eins og þeir séu hræddir við að vinna. Hræddir við að skora,“ sagði Aron. Á klippum sem hann sýndi mátti sjá mikið af mistökum Tottenham-manna en einnig glæsilegar sendingar frá Tonali. Aron vill bara fá fleiri svoleiðis: „Við sjáum alveg að hann getur þetta en ég veit ekki hvað þetta er. Hvort De Zerbi vill hafa of mikla stjórn… Við þurfum að sjá meira af þessu frá þessum leikmönnum sem komu inn og eiga að breyta einhverju.“
Enski boltinn Tottenham Hotspur Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Sjá meira