Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Andri Broddason skrifar 12. september 2026 21:46 Phil Taylor ætlar að finna pílukastara sem getur unnið Luke Littler í einum legg Samsett/Getty Pílukastsgoðsögnin Phil Taylor segir að áhugamaður í pílukasti geti unnið Luke Littler. Þeir ætla að halda mót saman þar sem Littler keppir gegn áhugamönnum um peningaverðlaun.
Verið er að halda úrtökumót þar sem Phil Taylor dæmir um hvort að áhugapílukastarar hafi það sem þarf til þess að reyna að vinna Luke Littler í einum legg. Sá sem getur unnið Littler mun fá hálfa milljón breskra punda í verðlaun sem gerir um 82 milljónir íslenskra króna. Mótið verður sýnt á Netflix þar sem Phil Taylor er staðráðinn í að finna áhugamann sem getur átt „Rocky Balboa-augnablik“ og unnið Littler í einum legg. Pílukastleggurinn verður frá 501 og fyrstur niður í 0 vinnur. Phil Taylor er sigursælasti pílukastari allra tíma og varð á sínum tíma heimsmeistari sextán sinnum sem er meira en nokkur annar. Luke Littler er enn einungis 19 ára en er nú þegar kominn með tvo heimsmeistaratitla undir beltið. Hann er því að byrja vel með að ná afrekum Taylor en hann á þó langt í land. Taylor sér um að skoða pílukastara um allt Bretland til að sjá hverjir gætu haft hæfileikana til þess að vinna Littler. Hann viðurkennir þó að til að vinna Littler þurfi heppnin að vera með áhugamanninum. „Áhugamaðurinn þarf að eiga sinn besta dag og biðja til guðs að Luke [Littler] eigi slæman legg,“ sagði Taylor við Sky Sports um möguleikana á að áhugamaður vinni Littler. Mótið verður haldið 30. október og verður sýnt í beinni útsendingu á Netflix. Gary Linneker, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta, mun sjá um að kynna keppnina fyrir áhorfendum.
Pílukast Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Tindastóll - Valur | Heimsækja erfiðan útivöll Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Sjá meira