„Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 12. september 2026 19:37 Gylfi Tryggvason gat verið stoltur af sínu liði. Vísir/Hulda Margrét „Í dag var aðal tilfinningin stolt og svo þakklæti líka, sem kom mér á óvart. Ég hélt að maður ætti að vera fúll eftir að hafa tapað,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, eftir 2-1 tap liðsins gegn Þrótti Reykjavík í úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta.
Grindavík/Njarðvík, sem er nýliði í Bestu deild kvenna, komst í úrslit Mjólkurbikarsins með því að slá út þrjú lið sem leika í Bestu deildinni. Fjórða liðið úr Bestu deildinni beið svo í úrslitum, Þróttur Reykjavík. Gylfi og stöllur hans höfðu lagt Þrótt tvívegis í deildinni en annað var upp á teningnum í dag. Eftir að komast yfir í síðari hálfleik fékk Grindavík/Njarðvík á sig tvö mörk og mátti því þola heldur súrt tap. „Aðallega er ég stoltur og þakklátur að hafa fengið að upplifa þennan dag og þennan leik með liðinu sem mér þykir svo innilega vænt um. Fast á hæla þess fylgir svekkelsi að hafa tapað leiknum. Þessar tilfinningar eru ríkjandi.“ Hefði Gylfi tefði tekið því fyrir tímabil að enda í efri hluta Bestu deildarinnar og komast í úrslit Mjólkurbikarsins? „100 prósent. Annað væri frekja, að búast við meiru á sínu fyrsta tímabili í deildinni. Frá stofnun félagsins höfum við lagt ofuráherslu á að verða betri í dag en við vorum í gær. Mæta á hverjum einasta degi og leggja sig 100 prósent fram, til að reyna vaxa.“ „Við höfum vaxið mjög hratt og það er búið vera ótrúlegt að vera hluti af þessu. Núna verðum við að sjá til þess að við höldum áfram að vaxa og leggjum okkur fram áfram.“ Hvað leik dagsins varðar hafði Gylfi þetta að segja: „Fyrstu tíu mínúturnar voru ekki eftir uppskrift, skallatennis í okkar vítateig. Eftir það fannst mér við vaxa ágætlega inn í leikinn og fórum inn í hálfleik með ágætis tök á leiknum. Var ánægður með hvernig leikurinn var að þróast þegar ég fór inn í hálfleik.“ „Í seinni hálfleik fannst mér við mjög góðar. Fannst við algjörlega ofan á frá fyrstu mínútu síðari hálfleiks og þangað til við skorum. Fannst við vera búnar að banka fast á dyrnar, skorum mark og fannst við enn ofan á eftir það.“ „Þær jafna úr víti og skora fljótlega annað markið eftir það. Þá fannst mér við missa taktinn og leikurinn fjaraði út í aukaspyrnur og innköst. Þróttur gerði það vel, lokuðu og drápu leikinn. Óska þeim til hamingju með sigurinn, þær eru vel að þessu komnar og verðskuldaðir meistarar.“ Að endingu var Gylfi spurður út í lok tímabilsins sem er langt í frá búið en úrslitakeppni Bestu deildarinnar fer af stað á næstu dögum. „Það eru fimm leikir eftir við bestu lið landsins, við fáum að halda áfram að máta okkur við þau og reyna nálgast þau eins hratt og við getum. Þurfum að nýta þessa leiki mjög vel til að halda áfram að vaxa því eftir þetta kemur langt undirbúningstímabil. Þurfum að njóta þess að teygja tímabilið lengur. Munum líklega svekkja okkur í dag og svo heldur lífið áfram.“
Íslenski boltinn Mjólkurbikar kvenna UMF Grindavík UMF Njarðvík Þróttur Reykjavík Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira