Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Valur Páll Eiríksson skrifar 11. september 2026 22:32 Álvarez er hér til vinstri að fagna marki með Jarrod Bowen. Báðir eru áfram hjá West Ham í ensku B-deildinni í vetur. Sá mexíkóski þvertekur fyrir ásakanir í heimalandinu. Rob Newell - CameraSport via Getty Images Edson Álvarez, fyrirliði mexíkóska landsliðsins, hafnar ásökunum um að hann hafi skipulagt mannrán. Hann var sakaður um slíkt í mexíkóskum fjölmiðlum í dag.
Kvikmyndagerðamaðurinn Juan Jose Lopez Ordonez sakar Álvarez um að hafa lagt á ráðin um að ræna sér í Mexíkó í nóvember 2024. Ordonez segir tvö menn hafa rænt sér, hótað sér, bundið fyrir augu sín, verið vopnuð og sprautað hann í hálsinn. Ordonez segist eiga inni 3,5 milljónir pesóa hjá Álvarez eftir að hafa unnið með mexíkóska fyrirliðanum að heimildamynd. Hann segist hafa óskað greiðslu árið 2024 en hafi einnig átt í útistöðum við fjölskyldu Álvarez um húseignir sem Odronez kveðst eiga. Hann greindi frá þessu í viðtali við mexíkóska fréttamiðilin TVNotas. Álvarez hafnar ásökunum Ordonez algjörlega og segir lagateymi sitt muni taka fast á rógburði gegn sér. Álvarez birti langa yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni þar sem hann segir nafn sitt hafa verið bendlað við allskyns hluti í gegnum tíðina en komið hafi að þolmörkum við viðtal Ordonez. „Ég hafna alfarið tengingu minni og ásökunum um átök sem snerta mig ekki neitt,“ segir Álvarez meðal annars. „Telji einhver að hann hafi sannanir um ólögmæta hegðun mína eru til staðar yfirvöld sem taka á slíku. Alvarlegar ásakanir þarf að styðja með sönnunargögnum sem koma skal til viðeigandi yfirvalda en ekki í gegnum yfirlýsingar í fjölmiðlum sem blása hluti upp og setja athygli ofar staðreyndum og sannleik“ segir einnig í yfirlýsingunni. Álvarez er leikmaður West Ham United sem féll í vor í ensku B-deildina. Hann var keyptur frá Ajax í Hollandi á 35 milljónir punda árið 2023. Hann lék sem lánsmaður hjá Fenerbahce í Tyrklandi á síðustu leiktíð eftir að hafa lent upp á kant við þáverandi þjálfara Graham Potter. Búist var við brottför hans frá Hömrunum í sumar en honum tókst ekki að tryggja sér samning annars staðar. Hann hefur leikið 102 landsleiki fyrir Mexíkó og lék fjóra leiki með liðinu á HM í sumar, sem fyrirliði landsliðsins. West Ham rústaði Hollywood-liði Wrexham 6-0 í ensku B-deildinni fyrr í kvöld. Álvarez var ekki í leikmannahópi West Ham í leiknum.
West Ham United Mexíkó Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira