Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. september 2026 11:36 Konan sætti gæsluvarðhaldi um tíma. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Ung móðir frá Suður-Jótlandi hefur verið ákærð fyrir að vera tveimur ungabörnum sínum að bana við fæðingu þeirra. Meint morð áttu sér stað með eins og hálfs árs millibili.
Vert er að vara við grófum lýsingum í fréttinni. Fyrra barnið fæddi konan í september 2023 í athvarfi. Samkvæmt ákærunni sem danska ríkisútvarpið greinir frá á hún að hafa myrt barnið með ofbeldi og/eða köfnun áður en hún setti það í frystikistu. Á þeim tíma var málið fellt niður af saksóknara og konan þess í stað kærð fyrir óviðeigandi meðferð á líki. Hún var síðar dæmd í þrjátíu daga skilorðisbundið fangelsi. Hún þvertekur enn í dag fyrir að hafa myrt barnið samkvæmt Louise Traberg Smidt, verjanda konunnar, sem DR ræddi við. Konan fæddi síðan seinna barnið sitt á heimili sínu í desember 2024, ári og þremur mánuðum eftir hið fyrra. Strax eftir fæðinguna á hún að hafa tekið kodda, lagt hann yfir öndunarveg barnsins og þrýst að. Einnig kemur fram að barnið hafi mögulega orðið fyrir einhvers konar höfuðhöggi. Hún á síðan að hafa sett barnið í plastpoka og komið því fyrir utandyra í grennd við heimili sitt. Hún var handtekin og sætti gæsluvarðhaldi um tíma en gengur nú laus. Ekki er búið að taka ákvörðun um hvenær verði réttað yfir henni. Konan játaði fyrir dómara að hafa orðið barninu að bana en þó samkvæmt vægara ákvæði en hinu almenna morðákvæði. Ákvæðið á við þegar móðir drepur sitt eigið barn strax eftir fæðingu vegna neyðar, ótta við vanvirðu eða undir áhrifum ringulreiðar og ráðaleysis sem orsakast af fæðingunni. Saksóknarinn fer fram á að konan verði dæmd fyrir manndráp í báðum tilvikum. Einnig hefur verið lögð fram varakrafa samkvæmt vægara manndrápsákvæðinu. Ekki liggur fyrir hversu langan dóm saksóknarinn fer fram á en mögulega gæti þess verið krafist að konan dvelji á lokaðri réttargeðdeild.
Erlend sakamál Danmörk Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira