Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2026 11:24 Ummælin um þjóðernishreinsanir AfD lét Friedrich Merz kanslari falla í þýska þinginu á miðvikudag. Vísaði hann til stefnu flokksins um svokallaða „endurflutninga“, fjöldabrottvísana á fólki af erlendum uppruna frá Þýskalandi. Vísir/EPA Fjarhægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland hefur stefnt Friedrich Merz, kanslara, vegna ummæla hans um að innflytjendastefna flokksins feli í sér þjóðernishreinsanir. Ummælin féllu í þýska þinginu þar sem þingmenn njóta almennt friðhelgi frá málsóknum.
Merz gagnrýndi stefnu Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) um svokallaða „endurflutninga“ á fólki af erlendum uppruna. Fjallað var um þá í stefnuskrá flokksins í Saxlandi-Anholt þar sem hann vann sögulegan sigur í sambandslandskosningum um síðustu helgi. „„Endurflutningar“ eru ekkert annað en samheiti fyrir þjóðernishreinsanir á grundvelli uppruna og húðlitar,“ sagði Merz í umræðum á þýska þinginu á miðvikudag. Stephan Brandner, einn af leiðtogum þingflokks AfD, sagði að dómstólar þyrftu að skarast í leikinn þar sem kanslarinn hefði ýjað sterklega að því að AfD hygði á þjóðernishreinsanir og þar með á endanum brottvísanir og morð. Evrópska blaðið Politico bendir á að þýskir þingmenn njóti almennt friðhelgi vegna þess sem þeir segja í umræðum á þinginu. Undantekning sé þó vegna ærumeiðinga. Brandner segir að ummæli Merz hafi farið yfir þau mörk. Endurflutningar voru lengi framan af hugmynd sem öfgahægrihreyfingar töluðu fyrir. Þeir geta falið í sér allt frá því að vísa fólki úr landi sem dvelur þar ólöglega til þess að senda þýska ríkisborgara af erlendum uppruna úr landinu ef þeir þykja ekki hafa aðlagast þýsku samfélagi nægilega vel að mati fylgjenda stefnunnar. Leiðtogar AfD forðustust að bendla sig við endurflutninga enda leiddi það til fjöldamótmæla þegar upplýst var að fulltrúar flokksins hefðu setið fund með fyrrverandi nýnasista til þess að ræða endurflutninga fyrir nokkrum árum. Undanfarin misseri hefur flokkurinn hins vegar tekið stefnuna upp óhikað. Jaðarhægriflokkar víðsvegar um Evrópu hafa sömuleiðis talað fyrir því sem þeir kalla endurflutninga á fólki af erlendum uppruna. Hugmyndin um endurflutninga er nátengt öfgahægrisamsæriskenningu um „Útskiptin miklu“. Samkvæmt henni eiga valdaöfl í vestrænum samfélögum vísvitandi að „skipta út“ innfæddum íbúum fyrir fólk af erlendum uppruna, oftast múslima, af annarlegum ástæðum.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. 1. júní 2026 10:07 Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Hugtak um fjöldabrottflutning fólks af erlendum uppruna sem var þar til nýlega bundið við ystu hægri öfgar í Evrópu er byrjað að láta á sér kræla í íslenskri stjórnmálaumræðu. Varaþingmaður Miðflokksins gerði því nýlega skóna að reka íslenskan ríkisborgara úr landi í samfélagsmiðlafærslu. 12. desember 2025 06:47 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. 1. júní 2026 10:07
Krafa um fjöldabrottvísanir fólks nemur land á Íslandi Hugtak um fjöldabrottflutning fólks af erlendum uppruna sem var þar til nýlega bundið við ystu hægri öfgar í Evrópu er byrjað að láta á sér kræla í íslenskri stjórnmálaumræðu. Varaþingmaður Miðflokksins gerði því nýlega skóna að reka íslenskan ríkisborgara úr landi í samfélagsmiðlafærslu. 12. desember 2025 06:47