Kanna hvort Kim eigi son Samúel Karl Ólason skrifar 10. september 2026 22:36 Kim Jong Un með dóttur sinni sem heitir Kim Ju Ae og er talin vera um þrettán ára gömul. Verið er að kanna hvort Kim eigi einnig eldri son. Svo hefur lengi verið talið en aldrei staðfest. AP/KCNA Forsvarsmenn Leyniþjónustu Suður-Kóreu segja að verið sé að kanna hvort Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, eigi son. Upplýsingar um fjölskyldu einræðisherrans eru gífurlega takmarkaðar. Hver sem niðurstaðan verður segja þeir að Kim hafi valið Kim Ju Ae dóttur sína sem arftaka sinn.
Leyniþjónustan hefur áður sagt að Kim sé talinn eiga þrjú börn með Ri Sol Ju, eiginkonu sinni, en fyrir utan Kim Ju Ae, dóttur þeirra, er lítið vitað um þau. Sjá einnig: Kim Jong Un orðinn þriggja barna faðir Kim Ju Ae sást fyrst opinberlega árið 2022 þegar hún var með föður sínum að fylgjast með tilraunaskoti nýrrar langdrægrar skotflaugar. Fyrir það komu einu upplýsingarnar um hana, og þar á meðal nafn hennar, frá Dennis Rodman, fyrrverandi körfuboltamanni og vini Kims. Hann ferðaðist nokkrum sinnum til Norður-Kóreu frá 2013 til 2017. Síðan þá hefur hún fylgt honum á fjölmarga viðburði og í opinberar heimsóknir. Hún fór til að mynda með Kim í opinbera heimsókn til Kína. Ráðamenn í Suður-Kóreu segja að það og fleiri atriði, eins og hvernig talað er um hana í ríkismiðlum Norður-Kóreu, sýni fram á að hann hafi valið hana sem arftaka sinn. Suður-Kóreumenn telja sig vita að Kim eigi barn sem er yngra en Kim Ju Ae en ekki er vitað hvers kyns það barn er né nákvæmlega hvenær það fæddist. Samkvæmt AFP fréttaveitunni er einnig verið að rannsaka hvort Kim eigi eldri son. Eins og áður segir hefur það lengi verið talið en aldrei staðfest. Forsvarsmenn leyniþjónustunnar ítreka þá að ef það barn reynist raunverulegt sé það ekki í stöðu til að verða arftaki föður síns. Sérfræðingur í málefnum Norður-Kóreu segir í samtali við AFP að í raun skipti aldur ekki máli þegar hver tekur við stjórnartaumunum í Norður-Kóreu. Vísar hann til þess að Kim hafi ekki verið elsti sonur föður síns. Kim yngstur þriggja bræðra Kim Jong Il, faðir Kims Jong Un, eignaðist þrjá syni og þrjár dætur með þremur konum, svo vitað sé. Af þeim er Kim yngsti sonur hans en eins og frægt er þá er Kim talinn hafa ráðið elsta bróður sinn af dögum með taugaeitri sem skilgreint er sem gereyðingarvopn á flugvelli í Kúala Lúmpúr árið 2017. Sjá einnig: Taugaeitur notað til að myrða hálfbróður Kim Jong Un Hinn bróðir einræðisherrans heitir Kim Jong Chul en hann er talinn búa í Pyongyang og kemur lítið að stjórnmálum Norður-Kóreu. Kim Yo Jong, yngri systir einræðisherrans, er talin töluvert valdamikil í Norður-Kóreu og hefur spilað stóra rullu í samskiptum ríkisins við Suður-Kóreu. Hvað varðar kyn væntanlegs arftaka einræðisherrans er Norður-Kórea hins vegar mjög karllægt ríki, ef svo má segja. Frá því það var stofnað árið 1948 hefur því verið stýrt af þremur körlum, Kom Il Sung, Kom Jong Il og Kim Jong Un. Margir sérfræðingar efast um að æðstu ráðamenn og herforingjar Norður-Kóreu, sem eru allir eldri karlar, muni sætta sig við að taka skipunum frá konu.
Norður-Kórea Suður-Kórea Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira