Selenskí kíkti á klakann Samúel Karl Ólason skrifar 9. september 2026 19:25 Vólódímír Selenskí og Þorgerður Katrín á Keflavíkurflugvelli í dag. Forsetaembætti Úkraínu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kom við á Íslandi í dag, á leið til Kanada. Hann lenti á Keflavíkurflugvelli þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tók á móti honum og fundaði með honum og teymi hans. „
Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála og ég undirstrikaði staðfastan stuðning Íslands við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. „Við hlustum á óskir Úkraínu um stuðning og íslensk stjórnvöld munu halda ótrauð áfram að veita þeim nauðsynlegan varnar-, efnahags – og mannúðarstuðning, einkum sem lýtur að loftvörnum og á sviði orkumála enda horfir úkraínska þjóðin því miður fram á harðan vetur.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tekur á móti Vólódómír Selenskí Úkraínuforseta við komuna til landsins.Forsetaskrifstofa Úkraínu Í tilkynningunni segir einnig að Denys Shmyhal, orkumálaráðherra Úkraínu, og Rustem Umerov, yfirmaður Leyniþjónustu Úkraínu, hafi einnig verið á fundinum. Hann sótti einnig Oleksiy Gavrysh, sendiherra Úkraínu gagnvart Noregi og Íslandi. Sjá einnig: Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Forsetinn úkraínski kom hingað til lands eftir að hann og teymi hans voru í Noregi þar sem Selenskí sótti jarðarför Haralds Noregskonungs. Þorgerður Katrín og Selenskí áttu fund ásamt orkumálaráðherranum Denys Shmyhal og Rustem Umerov, yfirmanni úkraínsku leyniþjónustunnar.Forsetaskrifstofa Úkraínu Selenskí birti upp úr klukkan átta stutt myndband af komunni til Íslands. Með því skrifar hann að hann hafi komið við hér á leiðinni til Kanada og segist hafa rætt undirbúning Úkraínumanna fyrir komandi vetur við Þorgerði Katrínu. Þá segir Selenskí að þau hafi talað um varnir úkraínskra orkuvera og loftvarnir Úkraínu. Undanfarin ár hafa Rússar gert ítrekaðar árásir á orkuinnviði og vatnsveitur í Úkraínu á veturna. Þessi vetur verður líklega ekki undantekning. Forsetinn segir að aðstoð Íslands hafi skilað árangri og að Úkraínumenn séu þakklátir fyrir hana. On my way to Canada, I met with Iceland’s Minister for Foreign Affairs, @thorgkatrin. We discussed Ukraine’s preparations for the winter, the protection of our energy sector, and strengthening our air defense. We count on continued cooperation and Iceland’s contributions to the… pic.twitter.com/W5WfgBh9XB— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 9, 2026 Flugvélin „næstum því“ fyrir dróna Selenskí flaug frá Moldóvu til Óslóar, en enginn flýgur frá Úkraínu um þessar mundir. Úkraínskir fjölmiðlar sögðu frá því í dag að um það leyti þegar flugvél forsetans var flogið af stað hafi rússneskum sjálfsprengidróna verið flogið inn í lofthelgi Moldóvu. Brottförinn tafðist vegna drónans en NRK hefur eftir Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, að dróninn hafi næstu því hæft flugvél Selenskís. Tveir létu lífið þegar annar dróni hæfði landamærastöð milli Úkraínu og Moldóvu í gærkvöldi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Utanríkismál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira