Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Agnar Már Másson skrifar 9. september 2026 20:16 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, svaraði stefnuræðu forsætisráðherra. Vísir/Viktor Freyr „Síðasta haust boðaði forsætisráðherra verðmætasköpunarhaust. Það varð að vaxtahækkunarvori. Nú blasir við verðbólguvetur.“
Þetta sagði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins undir umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hafði í stefnuræðu sinni hampað árangri ríkisstjórnarinnar í hinum og þessum málaflokkum og sagðist láta verkin tala. „Já, verkin tala,“ sagði Guðrún þá í sinni ræðu. „En þau segja aðra sögu en forsætisráðherra,“ bætti hún þá við og nefndi að verðbólga væri 5,6 prósent, stýrivextir 8 prósent og landsframleiðsla 1,1 prósent. Guðrún tók þá fram að stöðugleiki væri eitt stærsta velferðarmálið og það að bæta daglegt líf fólks hlyti að byrja á því að létta vaxtabyrðina og ná niður verðbólgunni. „Það er rétt að stefna að hallalausum fjárlögum. En fjárlagafrumvarp er áætlun. Ég þekki það úr atvinnurekstri að uppgjörið er það sem skiptir öllu máli. Það fagnar enginn góðri áætlun,“ bætti hún þá við og tekur svo fyrir orð Kristrúnar sem sagðist í stefnuræðu sinni ætla að „laga Ísland“. „Það er engin þörf á að laga Ísland,“ sagði Guðrún, heldur þurfi til dæmis að laga efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar; nú stefni fjárlög í um 68 milljarða halla, frekar en þann 28 milljarða halla sem lagt var upp með. Þá gagnrýnir hún að krónutölugjöld ríkisins eigi almennt að hækka um 5,2 prósent, sem sé meira en tvöfalt verðbólgumarkmið Seðlabankans. Bankaskatturinn hækki og kílómetragjaldið einnig, á meðan Seðlabankinn hafi þegar bent á þátt opinberra gjaldahækkana í aukinni verðbólgu. Guðrún sagði einnig ESB-atkvæðagreiðsluna í ágúst hafa tekið tíma, orku og fé og betur hefði mátt beina kröftum sínum að stærsta loforði ríkisstjórnarinnar, að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Sá tími kemur ekki aftur,“ sagði hún og tók þó fram að rækta ætti EES-samninginn og tengsl við vinaþjóðir beggja vegna Atlantshafsins. Því næst vék hún sér að stefnumálum Sjálfstæðisflokksins. „Sjálfstæðisflokkurinn vill að fólk haldi meira eftir af því sem það aflar og að fyrirtækin hafi svigrúm til fjárfestinga og nýrra starfa. Þannig styrkjum við samkeppnishæfni Íslands og bætum lífskjör,“ sagði Guðrún. Flokkurinn hefði lagt til að gjaldskrár ríkisins hækkuðu ekki umfram 2,5 prósenta verðbólgumarkmiðið og að dregið yrði úr skattahækkunum. „Ísland býr yfir miklum krafti. Hann er hjá fólkinu sem vinnur, skapar og heldur samfélaginu gangandi. Stjórnvöld eiga að leysa þann kraft úr læðingi. Það er verkefnið sem bíður,“ sagði Guðrún. „Og Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn að láta verkin tala.“
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Nýr eigandi tekur við og skötuunnendur geta andað léttar Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira