Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur Sindri Sverrisson skrifar 9. september 2026 15:02 Spænska landsliðið er ríkjandi heimsmeistari og vann sig inn á næsta HM með því meðal annars að vinna Ísland 6-1 á Laugardalsvelli í júní. vísir/Anton Heimsmeistarar Spánar í fótbolta kvenna geta nú með stuðningi spænska knattspyrnusambandsins fengið að frysta egg úr sér og fara í frjósemismeðferð ókeypis. Ákvörðunin er umdeild og óttast sumir að með þessu sé verið að pressa á leikmenn að fresta barneignum.
Spænska sambandið tilkynnti í gær um samning við Tambre-klíníkina sem bjóða mun spænskum landsliðskonum, sem og dómurum í spænsku úrvalsdeildinni, upp á ókeypis frjósemismeðferðir og frystingu eggja. Leikmenn spænska landsliðsins hafa fagnað þessu og sjá fram á betra svigrúm til að geta einbeitt sér að fótboltaferlinum en samt stefnt að móðurhlutverkinu þegar þær telja það tímabært. „Við sem fyrirliðar höfðum áhyggjur – það er leikmönnum afar mikilvægt að fá að prófa það að spila á HM – varðandi það að samræma það við þrána um að verða móðir,“ sagði Alexia Putellas við spænska blaðið El País fyrr í þessum mánuði. „Ég fann þessa þrá ekki fyrr en að undanförnu. Þökk sé ótrúlegri vinnu sambandsins þá hefur náðst samkomulag við klíník sem gerir okkur kleift að fyrsta egg á meðan fótboltaferillinn er á fullu, eins lengi og við viljum,“ sagði Putellas. Alexia Putellas, Jennifer Hermoso og Irene Paredes með bikarinn eftir að Spánn varð heimsmeistari 2023.Getty/Julieta Ferrario Spænska knattspyrnusambandið hefur áður einnig gert leikmönnum kleift að hafa börnin sín með sér á ferðalögum vegna landsleikja, til að mynda á stórmótum, og á það við bæði kvenna- og karlaliðið sem nú eru bæði ríkjandi heimsmeistarar. Af hverju að fjármagna frestun barneigna? Ekki eru allir hrifnir af því að spænska sambandið standi fyrir því að leikmenn geti fryst egg og frestað barneignum. Í þeim hópi er spænski þrístökkvarinn Ana Peleteiro-Compaoré Brión sem veltir fyrir sér hvort spænska sambandið geri þetta með eigin hag fyrir brjósti. Hún sagði á Instagram: „Vandamálið er augljóslega ekki frysting eggja. Vandamálið er: Af hverju er sambandið sem þessar konur starfa fyrir með áhuga á að fjármagna það að þeir fresti barneignum? Þetta er vandinn sem blasir við mér. Er þetta gert til að auðvelda konum að verða mæður eða er þetta til að auðvelda þeim að sleppa því á meðan þær eru að spila?“ Næsta heimsmeistaramót kvenna er næsta sumar í Brasilíu, þar sem Spánverjar eiga titil að verja.
Fótbolti Frjósemi Mest lesið Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Grótta í sambandi við Davíð Smára Chelsea - Manchester United | Síðasti sénsinn hans Carrick? 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sjá meira