Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar 9. september 2026 07:45 Í kosningabaráttunni fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var mikið talað um að hreinsa þyrfti burt fitulag í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Fólki var talin trú um að fitu þessa mætti skera í burtu án þess að það bitnaði á borgarbúum. Nú hefur meirihlutinn í Reykjavík fundið þetta svokallaða fitulag og það reyndist vera fólkið sem heldur utan um samstarf skóla, frístundastarfs og félagsþjónustu. Í síðustu viku tóku gildi breytingar þar sem meirihlutinn lagði niður miðstöðvar sem reknar hafa verið á fjórum stöðum í Reykjavík og þjónusta ákveðin hverfi og borgarhluta. Þar með voru lögð niður störf fólks sem þekkir hverfin, styður stjórnendur á vettvangi, leysir úr málum og sér til þess að upplýsingar komist á milli þeirra sem bera ábyrgð á velferð barna. Fólkið sem grípur inn í áður en vandinn verður stór. Þarna hélt meirihlutinn að fitan hefði fundist en skar í raun burtu burðarvirki velferðar barna og unglinga í Reykjavík. Burðarvirki sem felst í hverfamiðaðri þjónustu þar sem öll þau sem koma að barnahópnum í hverfinu hittast og eru í nálægð hvert við annað í daglegu starfi. Málið með burðarvirki er að það sést yfirleitt ekki í fullbyggðu húsi og við hugsum ósköp lítið um það á meðan veggirnir haldast uppi. Þegar burðarbitarnir eru teknir og húsið skekkist eða hrynur föttum við af hverju þeir voru þarna til að byrja með. Ég óttast nú að velferðin í borginni skekkist en vona auðvitað að hún hrynji ekki við þessa aðför að burðarvirkinu. En það er líka ekki of seint að átta sig. Skoða teikningarnar betur og taka aðrar ákvarðanir. Við búum í hverfum Í Reykjavík hefur verið unnið að hverfamiðaðri nálgun í þjónustu við íbúa í hátt í þrjá áratugi. Líf fólks skiptist nefnilega ekki eftir fagsviðum borgarinnar heldur eru það hverfin sem eru vettvangur daglegs lífs. Hverfisnálgun gerir fagfólki kleift að þekkja aðstæður í nærumhverfinu, mynda tengsl við íbúa og finna lausnir með skólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, íþróttafélögum, heilsugæslu, jafnvel lögreglu og öðrum sem koma að lífi barna. Hverfin í Reykjavík eru ólík að íbúasamsetningu, tekjum, tungumálum, félagslegri stöðu og áskorunum. Jafnt aðgengi að þjónustu felst því ekki í nákvæmlega sömu framkvæmd alls staðar. Mismunandi starfshættir hverfismiðstöðva geta einmitt verið merki um að þær þekki hverfin sín og séu að svara raunverulegum þörfum. Að ætla sér að staðla alla skapaða hluti er ekki endilega merki um gæði. Hin mörgu augu á barninu Hjartað í hugsuninni um hverfamiðaða nálgun, í farsældarlögunum og í stefnunni um Betri borg fyrir börn er að það séu mörg augu í kringum barnið. Það er kennarinn, námsráðgjafinn, starfsmaður félagsmiðstöðvar eða frístundaheimilis, íþróttaþjálfari, félagsráðgjafi sem er að aðstoða foreldrana og annað fagfólk, t.d. hegðunarráðgjafi. Þau sjá oft barnið með ólíkum hætti, þau hafa ólíkar nálganir og ólíka sérhæfingu. Ef barn glímir við vanda eða eitthvað kemur upp á, er það gripið ef þetta fólk talar saman, treystir hvert öðru og veit hver getur gert hvað. Án samtalsins geta vikur liðið – eða ár án þess að nokkuð sé að gert. Vanlíðanin vex og verður að alvarlegum vanda. Eftir á spyrjum við hvernig það gat gerst að enginn gerði neitt. Sett hafa verið á fót lausnateymi þar sem svona samtal og samráð fer fram. Með nýju skipulagi eru þau ekki lögð niður en það er sannarlega verið að leggja stein í götu þeirra – með því að fjarlægja ráðgjafana úr hverfunum, hlaða rekstrarverkefnum á forstöðumenn í frístund og taka út nálægðina milli ólíkra fagstétta sem var inni á miðstöðvunum. Hið óformlega og daglega samstarf skiptir nefnilega líka mjög miklu máli. Kostnaðurinn sem sést ekki strax Ástæða allra þessara breytinga er krafan um sparnað. Gert er ráð fyrir að breytingarnar sem tóku gildi í síðustu viku spari 900 milljónir króna á ári. Ég óttast þó að það sé ekki búið að hugsa þetta út í gegn. Sparnaður á einum stað getur auðveldlega orðið að kostnaði annars staðar. Forstöðumenn í frístundastarfi taka við aukinni ábyrgð sem leiðir til hærri launa. Leigubílarallýið með ráðgjöfum og fagfólki úr Borgartúninu að ferðast út um allan bæ mun eitthvað kosta – ekki síst í töpuðum vinnustundum. En umfangsmesti kostnaðurinn er auðvitað í börnunum sem við missum af – börnunum sem fá ekki stuðninginn af því við byggðum upp sílóin á nýjan leik og tókum út þekkingu og samtal í nærumhverfinu. Við munum að sjálfsögðu ekki sjá þennan kostnað strax í fjárhagsuppgjöri næsta árs en hann verður raunverulegur í lífi fólks og kostnaði samfélagsins. Nýr meirihluti í Reykjavík lofaði að skera burt fitulag en hefur í staðinn gert atlögu að burðarvirki velferðar barna og unglinga í Reykjavík. Ég get ekki stutt það. Það er ekki of seint að hætta við að stroka út hverfamiðaða nálgun Reykjavíkurborgar. Tryggjum það áfram að hin mörgu augu í kringum hvert barni sjái það saman því þannig grípum við börn sem þurfa á okkur halda. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Reykjavík Börn og uppeldi Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun