Sport

Ruglaðist á mót­herja og komst að því í miðju við­tali

Andri Broddason skrifar
Carlos Alcaraz er aftur kominn upp á sitt besta á Opna bandaríska risamótinu.
Carlos Alcaraz er aftur kominn upp á sitt besta á Opna bandaríska risamótinu. Sarah Stier/Getty Images

Carlos Alcaraz tryggði sig í 8-liða úrslit Opna bandaríska risamótsins í tennis á sunnudaginn en hann var ekki búinn að kynna sér dráttinn í mótinu. Hann ruglaðist á mótherja og fékk að vita hverjum hann gæti mætt í 8-liða úrslitum í viðtali eftir sigurinn í 16-liða úrslitum.

Carlos Alcaraz vann Tommy Paul örugglega í 16-liða úrslitum Opna bandaríska risamótsins í tennis og var eftir leikinn í viðtali hjá ESPN. Næsti leikur Alcaraz var gegn sigurvegaranum úr leik Ben Shelton og Stefanos Tsitsipas og var hann spurður um hvað honum fyndist báða leikmennina.

Eftir spurninguna var Alcaraz ringlaður þar sem hann hafði ruglast þegar hann skoðaði dráttinn fyrir mótið. Hann var að búast við því að spila gegn öðrum mótherja og kom leikurinn því honum í opna skjöldu.

Ben Shelton endaði á því að vinna leikinn og mun hann mæta Carlos Alcaraz í 8-liða úrslitum mótsins. Alcaraz er ríkjandi meistari á Opna bandaríska risamótinu en hann er loksins að spila eftir að hafa misst af bæði Opna franska risamótinu og Wimbledon vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×