Íslenski boltinn

Sjáðu auka­spyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn

Sindri Sverrisson skrifar
Hildur Katrín Snorradóttir og stöllur í FH komust í gær á topp Bestu deildarinnar en það gæti breyst í kvöld.
Hildur Katrín Snorradóttir og stöllur í FH komust í gær á topp Bestu deildarinnar en það gæti breyst í kvöld. vísir/Diego

Það er gífurleg spenna í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta, síðustu umferðinni fyrir skiptingu deildarinnar, sem lýkur í kvöld. Mörkin úr leikjum helgarinnar má sjá á Vísi.

Umferðinni lýkur í kvöld þegar Stjarnan mætir botnliði Víkings og Breiðablik sækir Þrótt heim og reynir að komast aftur á topp deildarinnar.

FH náði toppsætinu í gær og gerði um leið Grindavík/Njarðvík stóran greiða, með 2-1 endurkomusigri gegn Þór/KA. Norðankonur hefðu með sigri getað náð 6. sæti af Grindavík/Njarðvík en nýliðarnir héldu því og eru í því sex liða hópnum í efri hlutanum, þegar deildinni verður skipt upp.

Framkonur gerðu sitt besta til að komast í efri hlutann, með frábærum 3-2 endurkomusigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum, en enda (nema að Þróttur tapi með 12 marka mun gegn Breiðabliki í kvöld) í 7. sæti. Þær eru því efstar af fjórum neðstu liðunum sem fara nú í æsispennandi fallbaráttu, en Fram er aðeins fimm stigum fyrir ofan botnlið Víkings sem auk þess á leikinn í kvöld til góða.

Valskonur komu sér úr botnsætinu með frábærum 4-1 útisigri gegn Grindavík/Njarðvík. Miðvörðurinn Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði í þriðja leiknum í röð og nú úr frábærri aukaspyrnu af löngu færi. Heimakonur voru eflaust með hugann að einhverju leyti við úrslitaleik Mjólkurbikarsins við Þrótt næsta laugardag.


Tengdar fréttir

Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn

FH vann 2-1 sigur á Þór/KA í 18. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Með sigrinum tyllti FH sér á topp deildarinnar, að minnsta kosti um stundarsakir, en Íslandsmeistarar Breiðabliks eiga enn eftir að leika sinn leik í umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×