Viðskipti innlent

Gert ráð fyrir fimm milljarða af­gangi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Daði Már Kristófersson hélt blaðamannafund í morgun.
Daði Már Kristófersson hélt blaðamannafund í morgun. Vísir/Anton Brink

Fjármála- og efnahagsráðherra boðar jákvæða afkomu upp á fimm milljarða í nýju fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. 

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 á blaðamannafundi í morgun. Hann hóf kynninguna á að benda á að uppsafnaður halli ríkissjóðs frá árinu 2019 væri 866 milljarðar króna. Það hafi verið stærsta viðfangsefni ríkisstjórnarinnar að ná jafnvægi í ríkisfjármálum svo hægt sé að skapa nauðsynlegar forsendur fyrir lækkun verðbólgu.

Áætlað er að afkoma A-hluta ríkissjóðs verði jákvæð um tæplega sjö milljarða króna og að afgangur af rekstri B-hluta verði 1,5 milljarður króna sem er 1,5 milljörðum króna lakari afkoma en samkvæmt horfum ársins 2026.

Einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs sé vaxtabyrðin sem nemur 168 milljörðum króna árið 2026 en til stendur að hún lækki árið 2027.  Til stendur að útgjaldavöxtur ríkisins verði 1,1 prósent í samdrætti. 

Kristrún skrifaði núll á plagg til að tákna að um væri að ræða hallalaus fjárlög.Vísir/Anton Brink

16,2 milljörðum króna verður varið í heilsu og heilbrigðismál, 4,5 milljörðum í menntamál og atvinnustefnu og sjö milljarðar eiga að fara í samfélagslegt öryggi og samgöngur. Þá verður 4,4 milljörðum varið í Þjóðarhöll og aðrar menningarframkvæmdir, 8,8 milljörðum í börn og fjölskyldur og loks fara 11,8 milljarðar í kjarabætur.

Nýjar tekjuráðstafanir og aðhald

44 milljarðar eiga að koma inn í ríkissjóð með aðhaldi í rekstri, þar af fjórir milljarðar úr almennu aðhaldi, þrír milljarðar vegna fækkunar stöðugilda og loks 36 milljarðar vegna sértækra útgjaldaaðgerða.

Ráðist verður í nýjar tekjuráðstafanir og munu þær skila 22,6 milljörðum króna í ríkissjóð. Af þeim eru sex milljarðar vegna bankaskattsins svokallaða, fimm milljarðar vegna gjaldtöku í ferðaþjónustu, fjórir milljarðar vegna kílómetragjaldsins og aðrir fjórir þar sem baðlón verða sett í almennt virðisaukaskattsþrep. Loks vegur endurgreiðsla virðisaukaskatts lækkað vegna íbúðahúsnæðis og á það að skila 3,6 milljörðum í ríkissjóð.

Fréttin verður uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×