Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Kjartan Kjartansson skrifar 7. september 2026 07:37 Ulrich Siegmund (með þumalfingur á lofti), oddviti AfD í Saxlandi-Anholt, fagnar sætum sigri í gærkvöldi. Margir nánustu samverkamanna hans voru áður félagar í bönnuðum nýnasistasamtökum. AP/Matthias Schrader Fjarhægriflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland (AfD) vann stórsigur í sambandslandskosningum í Saxalandi-Anholt í gær. Hann gæti orðið fyrsti flokkurinn yst af hægri vængnum til þess að ná völdum í Þýskalandi frá því að þriðja ríki nasista var sigrað.
AfD fékk tæp 44 prósent atkvæða í Saxlandi-Anholt í gamla Þýska alþýðulýðveldinu. Flokkinn vantaði því þrjú sæti upp á að ná hreinum meirihluta á sambandslandsþinginu. Sigurinn er sögulegur en þetta er í fyrsta skipti sem AfD eygir raunhæfan möguleika á að komast til valda í Þýskalandi. Ulrich Siegmund, oddviti flokksins í Saxlandi-Anholt sagði flokkinn hafa skráð sig í sögubækurnar. „Við erum að endurheimta landið okkar. Þetta byrjar hér í Saxlandi-Anholt,“ sagði Siegmund í sigurræðu sinni og endurómaði orðræðu Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Andstaða gegn innflytjendum og hælisleitendum er meginstefið í stefnu AfD en fulltrúar flokksins hafa meðal annars talað fyrir því að vísa fólki af erlendum uppruna úr landi, jafnvel þótt það sé þýskir ríkisborgarar. Þá er flokkurinn hallur undir Rússland og er á móti stuðningi við varnir Úkraínu. Þýska leyniþjónustan skilgreinir nokkrar undirdeildir AfD sem öfgasamtök sem hún hefur sérstakar gætur á. Hún hugðist fella flokkinn á landsvísu undir sömu skilgreiningu en leiðtogum AfD tókst að fá því hnekkt fyrir dómi. Ekki er öruggt að sigurinn tryggi AfD völdin í Saxlandi-Anholt. Aðrir flokkar hafa sögulega útilokað samstarf við AfD vegna öfgahyggju flokksins. Afar erfitt gæti þó reynst að mynda starfhæfan meirihluta úr tvístruðum andstæðingum AfD. Frá mótmælum gegn AfD í Frankfurt í gær. Á spjaldinu til hægri stendur: „andfélagsleg, fasísk, heimsk“.AP/Boris Rössler/dpa Evrópska blaðið Politico segir að AfD þurfi líklega að reiða sig á að flokkurinn komist að samkomulagi við BSW, flokk vinstripopúlista sem fyrrverandi félagar í austurþýska kommúnistaflokknum stofnuðu eða að þingmenn annarra hægriflokka svíki lit. Kristilegi demókrataflokkur Friedrich Merz kanslara galt afhroð í kosningunum. Hann hlaut innan við átján prósent atkvæða en hann fékk 37,1 prósent í kosningum í sambandslandinu árið 2021.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Seinni heimsstyrjöldin Tengdar fréttir Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Kjörstöðum hefur verið lokað í Saxlandi-Anholt og miðað við fyrstu útgönguspár lítur allt út fyrir að það stefni í stórsigur fjarhægriflokksins AfD. 6. september 2026 16:32 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Kjörstöðum hefur verið lokað í Saxlandi-Anholt og miðað við fyrstu útgönguspár lítur allt út fyrir að það stefni í stórsigur fjarhægriflokksins AfD. 6. september 2026 16:32