Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Agnar Már Másson skrifar 5. september 2026 13:45 Ulrich Sigmund, leiðir lista AfD í Saxlandi-Anhalt. AP Í fyrsta sinn frá seinni heimsstyrjöld gæti fjarhægrimaður orðið ríkisstjóri í þýsku sambandsríki þar sem hægrisinnaði harðlínuflokkurinn Alternativ für Deutschland, AfD, leiðir nú skoðanakannanir fyrir þingkosningar í Saxlandi-Anhalt á morgun.
Í sambandsríkinu búa um tvær milljónir manns, þar af 1,7 milljónir sem hafa kjörgengi í kosningunum á morgun. AfD er popúlískur þjóðernisflokkur sem er afar mótfallinn straumi innflytjenda til landsins og hefur lýst efasemdum við stuðning Þjóðverja við Úkraínu. Ulrich Sigmund, leiðir lista AfD í Saxlandi-Anhalt, en hann hefur heitið því að láta vísa á brott öllum „óreglulegum innflytjendum“ um leið og hann kemst til valda. Þá hafa þeir lagt til eins konar „borgaravakt“, sem séu hópar borgara sem eigi að hjálpa lögreglu að takast á við vinstri öfgamenn. Í skoðanakönnunum er flokknum spáð hátt í 42 prósenta fylgi í kosningunum. Kristilegir demókratar mælast í öðru sæti með um tuttugu prósent. Ekkert víst ennþá Það yrði mikill áfangi í 13 ára sögu flokksins að komast í meirihluta í ríki í fyrsta sinn. Þetta segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, en hann setur þó þann fyrirvara að flokkurinn geti ekki endilega gengið að því vísu að komast í meirihluta. „Meginflokkarnir í Þýskalandi, það er að segja Kristilegir demókratar og Sósíaldemókratar, hafa dregið sóttvarnahring utan um AfD og hafnað því að vinna með flokknum, og hafa þess vegna farið í svona stórar samsteypustjórnir yfir miðjuna til þess að halda þeim frá,“ útskýrir Eiríkur. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði.Vísir/Anton Brink „En alltaf eftir því sem flokkurinn stækkar og kemst lengra þá verður það auðvitað þeim mun erfiðara.“ Það hvort AfD nái að mynda meirihluta hangir í raun á því hvort minni flokkum takist að ná 5 prósenta lágmarksfylgi til þess að tryggja sér mann á þingi. Séu að sækja í sig veðrið Eiríkur segir uppgang AfD og svipaðra flokka í Evrópu til marks um það að þjóðernishyggja hafi að nýju rutt sér til rúms í álfunni. Hann segir að þjóðernishyggju hafi að miklu leyti verið að miklu leyti útskúfað úr evrópskum stjórnmálum eftir síðari heimsstyrjöld. „Þeir hafa verið að sækja í sig veðrið og þeir stilla sér upp í svona bara hefðbundnum málum þjóðernishyggjunnar, gegn aðkomufólki, gegn framsali til alþjóðastofnana, gegn fjölbreytni og fjölmenningu og svona fyrir hefðbundnari gildum, fjölskyldugildum og svo framvegis.“ Aftur á móti eru þeir ekki endilega að sækja í sig veðrið alls staðar. „Það hefur verið gríðarlegur uppgangur þessara flokka undanfarið mjög víða en þeir eru líka að falla í fylgi í mörgum löndum, eins og til dæmis í Ungverjalandi þar sem Viktor Orbán missti stjórnina eftir að hafa verið þaulsetinn við stjórnvölinn. Sama gerðist í Póllandi, þannig að þetta er nú svona upp og niður,“ segir Eiríkur. „En almennt séð er þetta bara endurkoma þjóðernishyggju í Evrópu. Það er grunnurinn í öllu málinu.“
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira