Kínverskar stórstjörnur í haldi yfirvalda vegna rannsóknar um spillingu Andri Broddason skrifar 4. september 2026 11:02 Zhang Jun og Xia Xuanze eru báðir undir rannsókn vegna spillingar en þeir eru goðsagnir í Kína. Shi Tang/Getty Images Kínverska badmintonsambandið hefur verið það sterkasta í íþróttinni síðustu ár. Zhang Jun, forseti sambandsins, og Xia Xuanze, varaforseti sambandsins sem er einnig landsliðsþjálfari með áherslu á einliðaleik, eru í haldi kínverskra yfirvalda vegna spillingar.
Í apríl var Zhang Jun, forseti kínverska badmintonsambandsins, undir rannsókn fyrir bæði spillingu og fjárdrátt frá kínverska badmintonsambandinu. Kína tekur svona ásökunum alvarlega og er Zhang Jun búinn að vera í haldi yfirvalda síðan. Zhang Jun vann tvenn gullverðlaun á Ólympíuleikum þegar hann var leikmaður og var fyrir rannsóknina mikils metinn innan Kína. Nú hefur málið þróast enn meira því á mánudaginn var Xia Xuanze, varaforseti kínverska badmintonsambandsins og landsliðsþjálfari í einliðaleik, einnig rannsakaður og er í haldi yfirvalda í Kína. Xia Xuanze er 47 ára gamall og er af mörgum talinn einn besti kínverski badmintonmaður allra tíma. Hann varð heimsmeistari árið 2003 og var einnig lykilleikmaður þegar Kína varð heimsmeistari í liðakeppni. Báðir leikmennirnir voru gríðarlega mikils metnir innan Kína og því er gert ráð fyrir að brot þeirra séu mjög alvarleg fyrst þeir voru teknir af yfirvöldum. Kína hefur ekki gefið upp opinberar upplýsingar um málið en það uppgötvaðist fyrst þegar Zhang Jun var ekki viðstaddur þegar heimsmeistaramót landsliða fór fram í apríl. Þetta mál hefur einnig haft áhrif á kínverska leikmenn en Shi Yuqi, efsti leikmaður heimslistans, hefur verið skugginn af sjálfum sér á meðan Xia Xuanze hefur ekki verið með honum á hliðarlínunni. Shi Yuqi var mjög náinn þjálfara sínum og virðist vera nokkuð týndur ekki með þjálfarann sér við hlið. Sem dæmi tapaði Shi Yuqi í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins sem fór fram í sumar. Fleiri upplýsingar eiga eftir að birtast í málinu en það er enn á frumstigi. Kínversk yfirvöld reyna eins og þau geta að halda málinu frá almenningi svo ekki er meira vitað um málið að svo stöddu.
Badminton Kína Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Tindastóll - Valur | Heimsækja erfiðan útivöll Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Fékk batakveðjur frá nemendum móður hans Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira