Óttast að yfir áttatíu hafi farist Áróra L Davíðsdóttir skrifar 4. september 2026 00:04 Myndin er úr safni frá fyrri aðgerðum björgunarsveitar Spánar á sjó. EPA/GELMERT FINOL Talið er að um 80 manns hafi týnt lífi á ferð yfir Atlantshafið frá Gambíu til Kanarí. Báturinn fannst við strendur Kanarí 27 dögum eftir að hann er talinn hafa lagt af stað með 127 farþega innbyrðis.
Spænska björgunarsveitin á sjó, Salvamento Marítimo, kom auga á bátinn um 65 sjómílur suðvestur af strandbænum Arguineguín á Kanarí, einni af Kanaríeyjunum, í gær. Um borð fundust fimm látnir og 44 eftirlifendur. Eins og fyrr sagði er talið að báturinn hafi lagt af stað frá Gambíu í byrjun ágústmánaðar með 127 manns um borð. Þrír hafi verið fluttir til aðhlynningar í lífshættulegu ástandi. Samkvæmt mannréttindasamtökunum Caminando Fronteras létust 83 við för bátsins yfir Atlantshafið. Sjá einnig: Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fernando Clavijo, forseti Kanaríeyja, sagði í færslu á X: „Það er ólíðandi að mannslífum sé áfram tapað. Kanaríeyjar mega hvorki venjast því né líta á það sem eðlilegan hlut að Atlantshafið sé áfram dauðaleið.“ Es insoportable que sigan perdiéndose vidas. #Canarias no puede acostumbrarse ni normalizar que el Atlántico siga siendo una ruta de muerte.Lo que estamos viviendo en #Canarias y estos días también en #Ceuta vuelve a evidenciar una realidad: España necesita una política… https://t.co/3fSaByIhH7— Fernando Clavijo (@FClavijoBatlle) September 3, 2026 „Það sem við erum að upplifa á Kanaríeyjum og þessa dagana einnig í Ceuta afhjúpar enn og aftur veruleikann: Spánn þarf á ríkisstefnu í málefnum innflytjenda að halda og Evrópa verður að axla sína ábyrgð,“ skrifar hann. Sjá einnig: Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólarhring Leiðin yfir Atlantshafið frá Vestur-Afríku til Kanaríeyja er ein hættulegasta fólksflutningaleið heims. Þúsundir flótta- og farandfólks reyna við ferð á ári hverju í leit að því að komast á spænskt yfirráðasvæði.
Spánn Flóttamenn Gambía Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira