Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Samúel Karl Ólason skrifar 2. september 2026 12:21 Þrír munu hafa særst og óstaðfestir fregnir herma að einn sé látinn. Samfélagsmiðlar Til skotbardaga kom á milli starfsmanna tveggja úkraínskra leyniþjónusta í Kænugarði í morgun. Að minnsta kosti þrír eru sagðir særðir en málið mun tengjast tilraun rússneskra útsendara til að ræna leiðtoga rússneskrar sjálfboðaliðasveitar sem berst með Úkraínumönnum.
Forsvarsmenn Öryggisstofnunar Úkraínu segja að starfsmenn hennar hafi verið að rannsaka mannránstilraunina þegar útsendarar leyniþjónustu úkraínska hersins réðust á þá. Til skotbardaga kom. Leyniþjónusta úkraínska hersins kallast í daglegu tali GUR eða HUR. Öryggisstofnun Úkraínu, sem er leyniþjónusta, kallast SBU eða SSU. Fregnir hafa borist af því að einn hafi látið lífið en það hefur ekki verið staðfest. More footage from the site. Local media report one HUR officer was killed and two wounded in the Kyiv shooting involving HUR and SBU personnel. SBI representatives and the head of the SBU's Alpha unit arrived at the scene, and the sides agreed to unload their weapons for… https://t.co/ZO5WhEPno9 pic.twitter.com/3z8lk6DpvY— NOELREPORTS 🇪🇺 🇺🇦 (@NOELreports) September 2, 2026 Upplýsingar um málið eru enn á reiki en það snýr víst að Stepan Kaplunov, sem er næstráðandi í sveit sem kallast RVC. Hún er skipuð rússneskum sjálfboðaliðum sem berjast með Úkraínumönnum. Samkvæmt frétt Kyiv Independent reyndi einhver að ræna honum í Kænugarði á dögunum en það mun hafa misheppnast. Útsendarar rússnesku leyniþjónustunnar FSB (arftaka KGB) munu samkvæmt SBU hafa reynt að ræna Kaplunov. Þá segja forsvarsmenn SBU að þegar starfsmenn þeirra hafi verið á ferðinni til að rannsaka mannránstilraunina hafi hópur vopnaðra hermanna stöðvað þá og staðið í vegi þeirra. Að endingu hafi komið til skotbardaga. Ukrainska Pravda hefur eftir SBU að hermennirnir hafi verið handteknir en þrír þeirra eru sagðir hafa særst. Úkraínski miðillinn UA News hefur eftir ráðgjafa Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, að hann hafi krafið stjórnendur SBU og GRU um svör vegna skotbardagans. Kirill Budanóv, starfsmannstjóri Selenskís og fyrrverandi yfirmaður GUR, segir að atvikið sé til rannsóknar.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Tengdar fréttir Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn. 24. október 2023 10:56 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Njósnarar þjálfaðir af CIA heyja skuggastríð gegn Rússum Hópar úkraínskra njósnara sem hafa náin tengsl við Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA) og hafa jafnvel verið þjálfaðir í Bandaríkjunum eru sagðir heyja eigið stríð gegn Rússlandi í skuggunum. Þeir eru meðal annars sagðir hafa myrt Daríu Dugina í sprengjuárás, samverkamenn Rússa í austurhluta Úkraínu og rússneska hermenn. 24. október 2023 10:56