Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. september 2026 08:55 Ótrúleg tilviljun. Ótrúleg tilviljun varð til þess að bandaríski aktívistinn Candace Owens hitti bandaríska leikarann Justin Baldoni á Keflavíkurflugvelli síðasta föstudag. Owens hefur verið einn ötulasti stuðningsmaður leikarans í deilum hans við leikkonuna Blake Lively.
Baldoni virðist hafa notið lífsins á Íslandi undanfarnar vikur ef marka má samfélagsmiðilinn Instagram og meðal annars litið almyrkvann augum. Baldoni og Lively náðu sáttum í maí síðastliðnum eftir árslangar deilur í dómstólum og fjölmiðlum eftir samstarf þeirra við tökur á kvikmyndinni It Ends With Us árið 2024. Lively höfðaði mál á hendur Baldoni og sakaði hann um kynferðislega áreitni við tökur en Baldoni neitaði sök. Owens hefur eins og áður segir verið hans ötulasti stuðningsmaður og klappaði sér duglega á bakið á samfélagsmiðlum þegar ljóst var hverjar yrðu málalyktir í maí. Hún var dugleg að birta allskonar efni í tengslum við deilurnar og hjólaði reglulega í Lively og vinkonu hennar söngkonuna Taylor Swift. Owens var áður samskiptastjóri samtakanna Turning Point USA sem hafa það að markmiði að virkja ungt íhaldssamt fólk í bandarískum háskólum. Þá ganga sumir svo langt að kalla hana samsæriskenningasmið, að því er segir á samfélagsmiðlum. Everybody please congratulate me on Blake Lively’s psycho claims about Justin Baldoni being dismissed. We worked really hard on that one. In the end, truth wins. 🙌— Candace Owens (@RealCandaceO) April 2, 2026 Owens birti mynd af sér með Baldoni á samfélagsmiðlum síðastliðinn föstudag en myndin var tekin á Keflavíkurflugvelli. „Það voru um það bil einn á móti 100 milljónum á að ég rækist á Justin Baldoni á flugvelli á Íslandi á föstudagseftirmiðdegi. Alveg ótrúlegt.“ View this post on Instagram A post shared by CANDACE (@candaceoshow)
Hollywood Íslandsvinir Deilur Justin Baldoni og Blake Lively Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Fleiri fréttir Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Sjá meira