Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar 1. september 2026 08:15 „Hvernig hefurðu það?“ Við erum flest spurð þessarar spurningar reglulega, stundum oft á dag, og yfirleitt kemur svarið nánast sjálfkrafa. „Bara fínt.“ Oft er það satt. En kannski jafn oft höfum við ekkert sérstaklega velt svarinu fyrir okkur. Við svörum bara eins og við erum vön. Svo koma dagarnir þar sem við vitum að svarið er ekki „bara fínt“. Samt segjum við það. Kannski er það vegna þess að við viljum ekki að viðkomandi spyrji meira. Við viljum ekki þurfa að útskýra. Við viljum ekki að einhver hafi áhyggjur af okkur eða fái nýjar upplýsingar um okkur sem við erum ekki tilbúin að deila. Stundum viljum við einfaldlega komast hjá því að segja upphátt það sem við vitum sjálf: Mér líður ekki vel. Þá er auðveldara að segja: „Bara fínt.“ Líðan þarf ekki alltaf að vera góð. Einmanaleiki, kvíði, depurð, óöryggi, sorg og vonleysi eru hluti af tilfinningalífi okkar. Við vitum að ekki geta allir dagar verið góðir og að okkur getur ekki alltaf liðið vel. Sumar tilfinningar og hugsanir virðast þó hafa meira leyfi en aðrar. Við getum sagt að við séum stressuð. Að við séum búin á því. Að við höfum sofið illa eða séum að ganga í gegnum erfitt tímabil. En hvað ef hugsunin er: „Mig langar bara að hverfa.“ „Ég vildi að ég þyrfti ekki að vakna á morgun.“ „Það væri auðveldara ef ég væri ekki hér.“ Þarna verður samtalið erfiðara. Hugsanir um dauðann, að vilja hverfa eða að vilja ekki lengur vera til eru ekki það sama og að hafa tekið ákvörðun um að svipta sig lífi. Þær geta verið missterkar, varað mislengi og haft ólíka merkingu. Þær eiga samt eitt sameiginlegt: þær segja okkur að eitthvað í líðan okkar þarfnast athygli. Samt getur verið ótrúlega erfitt að segja þær upphátt. Það sem við segjum ekki. Skömmin getur verið sterk. Hvað segir það um mig að mér líði svona? Hvað ef fólki finnst ég vanþakklát? Hvað ef ég veld fjölskyldunni minni áhyggjum? Hvað ef viðkomandi bregst of harkalega við? Hvað ef ég segi þetta upphátt og get ekki tekið það til baka? Stundum reynum við líka að hlífa öðrum. Við sjáum fyrir okkur áhyggjurnar sem við myndum valda makanum, foreldrunum, vinkonunni eða börnunum. Þannig getum við sannfært okkur um að það sé betra að segja ekkert. Stundum er óttinn enn dýpri: Hvað ef þetta er orðið svona slæmt? Hvað ef mér líður aldrei betur? Þá gerist eitthvað sem er sérstaklega varhugavert. Við upplifum mikla vanlíðan en á sama tíma fækkar þeim sem vita af henni. Við verðum ein með hana. Skömmin hefur nefnilega tilhneigingu til að draga okkur inn á við. Hún segir okkur að fela, forðast og halda upplýsingunum fyrir okkur. Einmitt þegar við þurfum mest á tengingu við annað fólk að halda getur hún hvatt okkur til að loka á hana. Þegar einhver annar fær að vita Það er ein ástæða þess að það getur skipt svo miklu máli að segja frá. Það þarf ekki endilega að byrja á makanum, besta vininum eða fjölskyldunni. Fyrir suma er það einmitt erfiðast. Við getum verið hrædd við að særa fólkið okkar, breyta því hvernig það sér okkur eða setja á það byrði sem við viljum ekki að það beri. Þá má byrja annars staðar, hjá sálfræðingi, lækni eða öðrum fagaðila sem við treystum og finnum öryggi hjá. Það merkilega við að segja eitthvað upphátt er að við erum ekki lengur ein með vandann, þótt hann hverfi ekki við það. Önnur manneskja getur hjálpað okkur að setja orð á það sem er að gerast. Spurt spurninga sem við höfum ekki sjálf getað spurt eða hjálpað okkur að meta hversu alvarleg staðan er. Og þegar þess þarf, hjálpað okkur að finna næsta skref. Að segja frá er ekki að afhenda einhverjum öðrum ábyrgðina á lífi okkar. Það er að leyfa einhverjum að standa með okkur á meðan við finnum aftur fótfestuna. Kannski þurfum við því að taka þessa hversdagslegu spurningu aðeins alvarlegar. „Hvernig hefurðu það?“ Við þurfum auðvitað ekki að segja öllum sem spyrja hvernig okkur líður í raun. „Bara fínt“ má áfram vera fullkomlega ásættanlegt svar við samstarfsmanninn við kaffivélina eða kunningjann úti í búð. En ef svarið er ítrekað „bara fínt“ á sama tíma og við vitum sjálf að það er ekki satt, þá er kannski ástæða til að staldra við. Ekki endilega til að segja öllum frá. Heldur til að velja einhvern einn. Einhvern sem má vita að svarið er annað. Gulur september er vitundarvakning um sjálfsvíg og sjálfsvígsforvarnir. Hluti þeirra forvarna flest meðal annars í því að skapa samfélag þar sem við megum tala um vanlíðan áður en hún verður óbærileg, og þar sem jafnvel erfiðustu hugsanir mega heyrast án skammar. Carmen Maja Valencia, sálfræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd hjá Auðnast Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
„
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar