„Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Lovísa Arnardóttir skrifar 30. ágúst 2026 16:46 Costa segir Ísland enn náin og traustan samstarfsaðila ESB. Vísir/EPA Stofnanir ESB segjast virða fullkomlega vilja íslensku þjóðarinnar eftir að meirihluti kjósenda sagði nei við því að hefja aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. „
Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar. Ísland er áfram náinn samstarfsaðili Evrópusambandsins,“ segir í stuttri yfirlýsingu þeirra en fjallað er um málið á vef Euronews. Í fréttinni kemur einnig fram, líkt og á blaðamannafundi forystukvenna ríkisstjórnar fyrr í dag, að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafi í dag skipst á skilaboðum við António Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins. Í frétt Euronews er haft eftir talsmanni Costa að „báðir leiðtogar hafi lýst yfir vilja sínum til að halda áfram að styrkja sambandið milli ESB og Íslands“ í skilaboðunum. „Costa forseti lagði áherslu á að ESB virði fullkomlega lýðræðislegt val íslensku þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni í dag. Ísland er áfram einn nánasti og traustasti samstarfsaðili ESB,“ sagði talsmaðurinn. Nánar er fjallað um blaðamannafund ríkisstjórnarinnar að neðan en þar kom fram að ríkisstjórnin myndi virða niðurstöðu kosningarinnar og leggja aðildarviðræðurnar til hliðar. Stækkunarstefnan í hættu Í frétt Euronews segir að niðurstaðan sé talin geta dregið úr skriðþunga stækkunarstefnu sambandsins en Svartfjallaland er nú fremst í flokki og hefur lokað 18 af 33 aðildarköflum aðildarviðræðna. Landið stefnir að því að verða 28. aðildarríkið árið 2028, sem hafi orðið kveikjan að slagorðinu „28 fyrir 28“.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Svartfjallaland Utanríkismál Tengdar fréttir Nei-hliðin vann á ástríðunni Stjórnmálafræðingur segir að niðurstöðu kosninganna megi skýra af því að já-hliðin hafi einblínt um of á tæknilegar útfærslur á meðan ástríða hafi fengið að ríkja nei-megin. Þjóðernisíhaldssemi var áberandi í kosningabaráttunni og útilokað þykir að niðurstaðan leiði til afsagnar ríkisstjórnarinnar. 30. ágúst 2026 15:31 „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði ríkisstjórnina í góðu sambandi við landsbyggðina. Landsbyggðin standi sterk en niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar geti þýtt að staða fólks á höfuðborgarsvæðinu sé verri en þeirra á landsbyggðinni. Sterkara ákall hafi verið á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi viðræður en á landsbyggð. 30. ágúst 2026 15:27 Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. 30. ágúst 2026 12:45 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira
Nei-hliðin vann á ástríðunni Stjórnmálafræðingur segir að niðurstöðu kosninganna megi skýra af því að já-hliðin hafi einblínt um of á tæknilegar útfærslur á meðan ástríða hafi fengið að ríkja nei-megin. Þjóðernisíhaldssemi var áberandi í kosningabaráttunni og útilokað þykir að niðurstaðan leiði til afsagnar ríkisstjórnarinnar. 30. ágúst 2026 15:31
„Landsbyggðin okkar stendur sterk” Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði ríkisstjórnina í góðu sambandi við landsbyggðina. Landsbyggðin standi sterk en niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar geti þýtt að staða fólks á höfuðborgarsvæðinu sé verri en þeirra á landsbyggðinni. Sterkara ákall hafi verið á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi viðræður en á landsbyggð. 30. ágúst 2026 15:27
Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. 30. ágúst 2026 12:45