Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Kjartan Kjartansson skrifar 27. ágúst 2026 11:28 Ulrich Siegmund, líklegur næsti forsætisráðherra Saxlands-Anholt. Hann segist ekki vilja dæma fyrrverandi nýnasista í ráðgjafaliði sínu fyrir að hafa mætt í „tjaldbúðir fyrir löngu“. Vísir/EPA Nánustu ráðgjafar frambjóðandi jaðarhægriflokksins Valkosts fyrir Þýskaland sem gæti orðið fyrsti fulltrúi flokksins til þess að sigra í kosningum voru félagar í bönnuðum nýnasistasamtökum. Frambjóðandinn segir ráðgjafana alla „framúrskarandi“ fólk.
Skoðanakannanir benda til þess að Ulrich Siegmund, frambjóðandi Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) verði næsti forsætisráðherra sambandslandsins Saxlands-Anholt eftir kosningar sem fara fram 6. september. Fjórir ráðgjafar hans voru félagar í Föðurlandsholl þýsk ungmenni (þ. Heimattreue Deutsche Jugend (HDJ)), nýnasistasamtökum sem þýskur yfirvöld bönnuðu árið 2009, að sögn þýska fjölmiðilsins WELT. Þegar samtökin voru bönnuð vísuðu stjórnvöld til þess að þau byggðu á hugmyndafræði „þjóðernissósíalisma“ og að raunverulegt markmið þeirra væri að þjálfa upp framvarðarsveit nýnasista. Fyrirmynd samtakanna væri Hitlers-æskan, æskulýðssamtök nasista. Dómstóll staðfesti bannið árið 2010. Tveir mannanna eru á meðal nánustu ráðgjafa Siegmund en hinir tveir tóku þátt í að skrifa stefnuskrá AfD fyrir kosningarnar. Þeir hafa ýmist neitað að tjá sig um þátttöku þeirra í HDJ eða reynt að gera lítið úr henni. Siegmund stendur sjálfur þétt við bakið á sínum mönnum og lýsir þeim sem „framúrskarandi“. „Ferill þeirra er lýtalaus. Ég hef ekki áhuga á því sem gerðist fyrir tuttugu eða tuttugu og fimm árum,“ segir hann. Vilja aðskilja erlend börn frá þýskum AfD er þjóðernisíhaldsflokkur sem hefur átt vaxandi vinsældum að fagna í Þýskalandi upp á síðkastið. Nái Siegmund kjöri í Saxlandi-Anholt verður hann fyrsti fjarhægrimaðurinn sem kemst til valda í þýsku sambandslandi frá falli nasismans árið 1945. Á meðal þess sem flokkurinn boðar fyrir kosningarnar í næsta mánuði er að senda börn hælisleitenda og flóttamanna í sérstaka skóla þar sem þeim yrði kennt eftir námsskrá upprunalanda þeirra, helst af samlöndum þeirra. Talsmenn AfD segja að það sé æskilegt til þess að gera börnunum ljóst að þau séu aðeins tímabundið í Þýskalandi og til þess að hlífa þýskum börnum við að þurfa að sitja kennslu með börnum af „algerlega framandi menningarheimum“. Þýska leyniþjónustan hefur skilgreint ýmsar undirdeildir AfD sem öfgasamtök sem hún fylgist sérstaklega með. Hún ætlaði að skilgreina flokkinn sjálfan sem slík í fyrra en flokkurinn kærði þá ákvörðun.
Þýskaland Kosningar í Þýskalandi Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira