Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. ágúst 2026 08:26 Börnin verða upplýst um tilvist hvors annars og tengsl þeirra útskýrð smám saman, í takt við aldur og þroska. Myndin er úr safni. Getty Fordæmalaus staða kom upp í Queensland í Ástralíu í fyrra, þegar staðgöngumóðir eignaðist „tvíbura“ sem áttu sitt hvora foreldrana. Konan fæddi dreng, sem var sonur hennar og eiginmanns hennar, og stúlku, sem var líffræðileg dóttir pars hvers barn hún hafði samþykkt að ganga með.
Bæði börnin komu í heiminn með keisara í nóvember í fyrra. Það voru sameiginlegir vinir sem komu C og D í samband við A og B. C gat ekki eignast börn sjálf, þar sem hún fæddist án legs. A samþykkti að ganga með barn fyrir C og D en varð fyrir tilviljun ólétt að eigin barni á sama tíma. Engin vafi leikur á því að drengurinn er líffræðilegur sonur A og B og að stúlkan er líffræðileg dóttir C og D. Þau hafa alist upp hjá foreldrum sínum frá fæðingu. Málið vandaðist hins vegar þegar kom að því að úrskurða C og D forræði yfir stúlkunni. Víðast hvar í heiminum eru lög skýr um það að sú kona sem gengur með og fæðir barn er móðir barnsins. Þess vegna þarf dómstóll að leggja blessun sína yfir yfirfærslu foreldraréttar frá staðgöngumóðurinni og til líffræðilegra foreldra. Löggjöfin í Ástralíu kveður hins vegar á um að óheimilt sé að skilja að systkini sem verða til og koma í heiminn með staðgöngumæðrun. Dómaranum var þannig nokkur vandi á höndum en komst á dögunum að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að börnin hefðu verið fædd af sömu konu og á sama degi, væru þau ekki systkini í skilningi laga um staðgöngumæðrun. Þó gat dómarinn þess einnig að kringumstæðurnar væru líklegar til að hafa tilfinningaleg áhrif á börnin, þeas að þau gætu upplifað tengsl við hvort annað án þess að alast upp á sama heimili. Foreldrara barnanna hafa ákveðið að börnin kynnist hvort öðru og að greina þeim frá tengslum þeirra smám saman, í takt við aldur og þroska. Guardian greindi frá.
Börn og uppeldi Ástralía Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira