Náði að plata Óskar Örn Stefán Árni Pálsson skrifar 26. ágúst 2026 20:02 Guðjón Pétur og Óskar Örn eru saman þjálfarar Hauka. Vísir/lýður Þrátt fyrir að enn séu þrjár umferðir eftir af annarri deildinni eru Haukar nú þegar búnir að tryggja sig upp í næstefstu deild. Þjálfari liðsins Guðjón Pétur Lýðsson segist vera stoltur af liðinu og setur stefnuna á sæti í efstu deild fyrir 100 ára afmælið.
Eftir sjö ár í 2. deild leika Haukar í Lengjudeild karla á næsta tímabili. Þetta var ljóst eftir 5-2 sigur á Dalvík/Reyni á Ásvöllum á sunnudaginn. Guðjón Pétur tók við liðinu í vetur. „Ég náttúrulega var búinn að vera leikmaður tvö ár á undan þannig að maður þekkti hópinn vel og maður vissi svo sem að það vantaði ekkert endilega gæðin í hópinn en það vantaði kannski ákveðið know-how. Það er náttúrulega ótrúlega dýrmætt að hafa fengið annars vegar Gunnlaug Fannar, Pablo [Punyed] og Jonna og Einar Karl, til að leiða þetta vinningseðli inn í hópinn,“ segir Guðjón í Sportpakkanum á Sýn í gær. Allir stigu upp „Mér finnst við hafa náð að binda þetta vel saman, ekki bara innan vallar heldur utan vallar líka. Við stofnuðum þarna Máttarstólpa sem eru mjög öflugir menn í kringum þetta. Stjórnin steig upp og meistaraflokksráð er orðið mjög öflugt og við höfum gert þetta mjög heildstætt alls staðar. Miðað við allt sem við erum með hérna í kringum okkur, aðstöðuna núna og nýja baklandið og fólk með mikinn metnað, þá að sjálfsögðu setjum við stefnuna á að ná árangri og það liggur svolítið í augum uppi að við ætlum auðvitað að gera góða hluti og félagið verður hundrað ára 2031, þannig að ég ætla að lofa því að við verðum komnir upp fyrir það.“ Nýtt knattspyrnuhús Hauka gjörbreytir allri umgjörð fyrir allt félagið. „Það ýtir bara undir áhuga hjá krökkum, aðstaðan batnar, foreldrar hætta kannski að keyra með börnin upp í Kaplakrika til þess að vera inni, þannig að við erum bara að njóta góðs af og við munum njóta góðs af, sérstaklega þegar til lengri tíma er litið.“ Þjálfarateymi Hauka er með því reynslumesta á Íslandi og sérstaklega inni á vellinum. Þarna má telja saman fjölmarga Íslandsmeistaratitla. „Það er enn þá hálf ótrúlegt að ég hafi náð að plata Óska [Örn Hauksson] með mér í þetta, Daða [Lárusson] og svo má ekki gleyma auðvitað Pablo og Ævari Daða. Ég ætla að segja ykkur frá einum galdrakarli úr Árbænum sem hefur séð um öll föstu leikatriðin hjá okkur og verið að greina leikina. Sama með Óskar, hann er búinn að koma mjög sterkt inn í þetta, hann hefur verið með mér með liðið, við erum saman með þetta. Pablo með sína reynslu og svo má aldrei gleyma pabbanum, Daða Lár, sem hefur verið okkar lærifaðir þegar ýmis mál hafa komið upp og með sinni stóísku ró hefur hann hjálpað okkur að taka góðar ákvarðanir.“ Klippa: Vill koma Haukum upp í efstu deild
Íslenski boltinn Haukar Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Tindastóll - Valur | Heimsækja erfiðan útivöll Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Tapaði fyrir mótherja sem var 28 árum yngri Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira