Sport

Sprungið dekk í Þakgili eyði­lagði úr­slita­leik HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það voru skiptar skoðanir um Harry Maguire í þættinum.
Það voru skiptar skoðanir um Harry Maguire í þættinum. vísir/getty

Besta sætið er komið til baka úr sumarfríi og verður á sínum stað alla virka daga í vetur. Það var af nægu að taka í þætti dagsins.

Starfsfólk íþróttadeildar Sýnar hélt golfmót í gær. Það var lítið um glæsileg tilþrif en þeim mun meira um gleði. Rikki G fór reyndar næstum því holu í höggi á par 4 holu þannig að þetta var ekki alveg glatað. Allt um mótið í þætti dagsins.

Einnig var lítillega tæpt á raunum sumarfrísins en Sindri Sverrisson átti einkar erfiðan dag um miðjan júlí sem hann gleymir seint.

Enski boltinn var annars fyrirferðamikill í þætti dagsins líkt og hann á eftir að verða í vetur. Arsenal stendur langbest að vígi í upphafi tímabils og það eru enn til menn sem hafa trú á Man. Utd þrátt fyrir hauskúpubyrjun á tímabilinu.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×