Viðskipti innlent

Guð­mundur Fertram verður sér­legur erind­reki

Árni Sæberg skrifar
Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Ólafur Ragnar Grímsson, sem er stofnandi Hringborðs norðurslóða.
Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Ólafur Ragnar Grímsson, sem er stofnandi Hringborðs norðurslóða. Stöð 2/Arnar

Guðmundur Fertram Sigurjónsson hefur tekið við hlutverki sérlegs erindreka fjárfestinga og viðskipta hjá Hringborði norðurslóða. Í því hlutverki mun hann stuðla að auknum fjárfestingum, viðskiptum og frumkvöðlastarfsemi á norðurslóðum fyrir fjárfesta, fyrirtæki og frumkvöðla

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Guðmundur Fertram komi inn með víðtæka reynslu sem frumkvöðull, fjárfestir og leiðtogi í alþjóðlegu atvinnulífi. Hann muni nýta þá reynslu til að styðja við fyrirtæki og frumkvöðla á Norðurslóðum. Með alþjóðlegu tengslaneti Arctic Circle gefist einstakt tækifæri til að brúa bilið milli þeirra og alþjóðlegs fjárfestinga- og viðskiptalífs, með það að markmiði að auka verðmætasköpun á svæðinu. 

„Það er mér mikill heiður að taka að mér hlutverkið sem snýst um að tengja saman fólk, hugmyndir og fjármagn. Norðurslóðir búa yfir gríðarlegum tækifærum til sjálfbærrar verðmætasköpunar. Verkefnið er að skapa tengingar sem gera góðum hugmyndum kleift að verða að alþjóðlegum fyrirtækjum og fjárfestingum,“ er haft eftir Guðmundi Fertram.

Þá segir að viðskiptaþing Hringborðs norðurslóða verði lykilvettvangur í þessu hlutverki. Þar muni Guðmundur Fertram taka þátt í að skapa umgjörð þar sem fólk úr ólíkum áttum kemur saman til að ræða hugmyndir og móta ný samstarfstækifæri. Með hringborðsumræðum og öðrum viðburðum verði lögð áhersla á markvissa tengslamyndun, sem geti leitt til nýrra verkefna og fjárfestinga á norðurslóðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×