Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Samúel Karl Ólason skrifar 26. ágúst 2026 08:18 Ættingjar nýbura sem dóu í eldsvoðanum. AP/M.Yousaf Að minnsta kosti fjórtán nýburar eru látnir eftir að eldur kviknaði á fæðingardeild í Islamabad í Pakistan. Eldurinn er talinn hafa kviknað út frá loftræstikerfi í fæðingardeildinni og dreifðist hratt þaðan. Nýburarnir voru flestir í hitakössum eða tengdir við súrefnisslöngur, en eldurinn fór hratt um súrefnisdreifikerfi fæðingardeildarinnar.
Pakistan Institute of Medical Sciences, eða PIMS, er eitt stærsta sjúkrahús Pakistan. Mikil sorg ríkir í höfuðborginni en Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistan, hefur boðað rannsókn og heitir því að refsa þeim sem bera ábyrgð á slysinu. Pakistanski miðillinn Geo TV segir að sextán nýburar hafi verið á fæðingardeildinni, sem var á þriðju hæð sjúkrahússins, og að fimmtán þeirra hafi látið lífið. Fjórtán þeirra brunnu í eldinum, samkvæmt heimildum miðilsins. Geo TV segir enn fremur að eldurinn hafi kviknað út frá loftræstikerfi á fæðingardeildinni, um klukkan 6:45 að staðartíma. Loftpressa í kerfinu mun hafa sprungið. Þetta hefur ekki verið staðfest en samkvæmt BBC hefur verið skipuð sérstök rannsóknarnefnd til að kafa ofan í saumana á því hvað gerðist og hvernig það gat gerst. Í samtali við blaðamann Reuters segir eitt foreldri að öllum dyrum að fæðingardeildinni nema einni hafi verið læst. Þar hafi öryggi og ráðstafanir vegna bruna verið litlar sem engar. Geo TV hefur eftir öðrum foreldrum að enginn starfsmaður sjúkrahússins hafi verið á fæðingardeildinni þegar eldurinn kviknaði. Yfirmaður sjúkrahússins segir, samkvæmt BBC, það þó ekki rétt að dyr hafi verið læstar. Þær hafi verið vaktaðar til að tryggja að börnum yrði ekki rænt, sem hefur gerst áður í Pakistan.
Pakistan Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira