Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 11:02 Joost Klein var fulltrúi Hollendinga síðast þegar þeir tóku þátt í Eurovision, árið 2024 í Svíðþjóð. AP/Martin Meissner Holland ætlar að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2027 sem haldin verður í Búlgaríu. Hollendingar tóku ekki þátt í keppninni í ár og segja hana ekki lengur vera hlutlausa vegna þátttöku ríkja sem eigi í átökum.
Hollenska ríkisútvarpið AVROTROS greinir frá þessu í tilkynningu. Þar segir að Holland muni ekki taka þátt þar sem keppnin teljist ekki lengur hlutlaus þar sem eitt ríkjanna sem tekur þátt eigi enn í stórfelldum hernaðarátökum. Mannúðarkrísa á Gasa og viðvarandi takmarkanir á fjölmiðlafrelsi hafi stuðlað að vaxandi ágreiningi í kringum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva undanfarin ár. „Pólitísk spenna í Mið-Austurlöndum hefur veruleg áhrif á keppnina og hefur leitt til djúpstæðs ágreinings,“ segir í tilkynningunni. Það endurspeglist í sniðgöngu fimm ríkja á keppninni í fyrra en Ísland var meðal þeirra sem sniðgengu Eurovision í ár. Vísað var til þess að þátttaka ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hefði valdið óeiningu, bæði meðal aðildarstöðva Sambands evrópskra útvarpsstöðva og almennings. Auk Íslands og Hollands tóku Spánverjar, Írar og Slóvenar ekki þátt í keppninni í ár. Þar að auki hafi fyrrum sigurvegarar skilað verðlaunagripum sínum og yfir þúsund tónlistarmenn skorað á EBU í opnu bréfi að grípa inn í. Það undirstriki þörfina fyrir skýran ramma til að meta þátttöku landa sem eiga í hernaðarátökum. Þátttaka sé ekki í samræmi við gildi AVROTROS Undanfarið ár hafi hollenska ríkisútvarpið skorað á Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) að setja gagnsæjar reglur um þátttöku landa sem eiga í hernaðarátökum. Hins vegar veiti nýlega tilkynntar breytingar af hálfu EBU ekki nægilegt traust á því að sjálfstætt og hlutlaust eðli Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hafi verið endurreist. Enn þyki AVROTROS óljóst við hvaða kringumstæður þátttaka samræmist hlutlausri keppni og hvenær ekki. „Þátttaka er því ekki lengur í samræmi við gildi AVROTROS: áreiðanleika, sjálfstæði og mannúð.“ Ekki megi halda keppnina þar sem vopnuð átök fari fram Nýverið gerði EBU breytingar á reglum keppninnar en þær munu vera í gildi í keppninni á næsta ári. Þær kveða meðal annars á um að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu. „Þar sem vopnuð átök, viðkvæm landfræðileg staða eða aðrar ástæður hafa veruleg áhrif á öryggi, vernd eða stöðugleika á landinu eða nærliggjandi svæði þátttökusjónvarpsstöðvar, skal sú þátttökusjónvarpsstöð ekki vera gjaldgeng til að halda næstu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ef framlag hennar sigrar,“ segir í tilkynningu EBU.
Holland Búlgaría Eurovision Eurovision 2027 Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 13. ágúst 2026 09:13 Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fleiri fréttir Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sjá meira
Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 13. ágúst 2026 09:13