Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Kjartan Kjartansson skrifar 21. ágúst 2026 11:38 Johan Helberg svaf værum svefni á meðan flutningaskiptið NCL Salten strandaði, aðeins örfáum metrum frá húsinu hans við Þrándheimsfjörð í maí 2025. Vísir/EPA Norskur dómstóll dæmdi í dag skipstjóra flutningaskips sem sigldi næstum á íbúðarhús þegar það strandaði í Þrándheimsfirði í fyrra í skilorðsbundið fangelsi. Stýrimaður skipsins sofnaði í brúnni.
Hollenski skipstjórinn á NCL Salten játaði brot á skipstjórnarlögum. Hann var dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi, að sögn norska ríkisútvarpsins. Ólukkan dundi yfir í maí í fyrra. Þá strandaði flutningaskipið, sem er um 135 metra langt, í Byneset við Þrándheimsfjörð, aðeins örfáum metrum frá íbúðarhúsi þar sem húsráðandi svaf á sínu græna eyra. Sá varð ekki var við neitt en hrökk upp af værum blundi þegar nágranni hans, sem varð vitni að öllu saman, hringdi dyrabjöllunni. Skipstjórinn var ákærður fyrir að tryggja ekki að kveikt væri á viðvörunarkerfi í brú skipsins þegar það lagði úr höfn í Averøy. Hann tók svo lykil að kerfinu með sér þegar hann yfirgaf brúna og skildi stýrimanninn eftir við stjórnvölinn. Sá dró svo ýsur þegar skipið sigldi í strand. Stýrimaðurinn var einnig ákærður í málinu en hann hefur ekki viljað játa á sig brot. Minnstu mátti muna að flutningaskipið rækist á húsið þegar það strandaði í Þrándheimsfirði.Vísir/EPA
Noregur Skipaflutningar Samgönguslys Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira