Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Kjartan Kjartansson skrifar 21. ágúst 2026 08:36 Árlegar monsúnrigningar á Indlandi eru undir meðaltali í ár. El niño fylgja þurrari aðstæður þar, í Suðaustur-Asíu, Ástralíu, norðanverðri Suður-Amériku og Suður-Afríku. Á móti verður úrkomusamara við austurströnd Afríku, sunnar í Suður-Ameríku og Bandaríkjunum. Vísir/EPA Útlit er fyrir að El niño-veðurfyrirbrigðið sem er að gerjast í Kyrrahafi verði það öflugasta í manna minnum. Líklegt er þá að næsta ár verði það hlýjasta í mælingasögunni.
El niño er náttúrulegt veðurfyrirbrigði í Kyrrahafinu í kringum miðbaug sem er tengt við hækkun meðalhita jarðar og auknar veðuröfgar. Nokkur af hlýjustu árum í mælingasögunni hafa átt sér stað þegar El niño magnar upp þá manngerðu hlýnun sem á sér stað á jörðinni. Nú segir breska veðurstofan að fyrirbrigðið sem hefur verið að myndast í Kyrrahafi á þessu ári verði líklega það öflugasta sem sögur fara af. Til marks um þetta bendir breska ríkisútvarpið BBC á að vísindamenn telji El niño-atburð hafinn þegar sjávarhiti í ákveðnum hluta Kyrrhafsins er hálfri gráðu meiri en meðaltali. Nú er hitinn um tveimur gráðum yfir meðaltalinu og talið er að frávikið gæti náð þremur gráðum þegar fyrirbrigðið nær hámarki. „Við ættum að tala skýrt um að þetta er fordæmalaus atburður. Ég hef aldrei séð svo sterkt El niño-merki í spám okkar,“ segir Adam Scaife, yfirmaður langtímaspáa hjá bresku veðurstofunni. Gæti orðið sá sterkasti í allt að þúsund ár Áhrifa El niño er þegar farið að gæta víðs vegar um heiminn. Monsúnrigningar á Indlandi eru undir meðaltali og minna er um fellibyli í Atlantshafi en í meðalári. Hvort tveggja er á meðal fylgifiska El niño. Á Bretlandi og í Norðvestur-Evrópu er útlit fyrir að haustið gæti orðið úrkomu- og vindasamt ef marka má langtímaveðurspár. Búist er við því að sterkustu áhrif fyrirbrigðisins á veðurfar á jörðinni komi fram eftir að það nær hámarki sínu í vetur. Þannig gæti árið 2027 hæglega slegið 2024 við sem hlýjasta árið í mælingasögunni. Gangi ítrustu spár um að hitafrávikið í Kyrrhafi nái fjórum gráðum yrði það hugsanlega sterkasti El niño í fímm hundrað eða jafnvel þúsund ár, að sögn Zeke Hausfather, loftslagsvísindamanni hjá Berkeley Earth.
Loftslagsmál Náttúruhamfarir Veður Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira