Innlent

Þrír hand­teknir eftir á­rás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd úr safni.
Mynd úr safni. Vísir/Ívar Fannar

Lögreglan handtók í gær þrjá vegna líkamsárásar þar sem, samkvæmt tilkynningu eggvopnum og hnúajárni, var beitt.

Eftir að lögreglu var tilkynnt um málið munu allir hlutaðeigandi hafa flúið vettvang. En eftir rannsókn lögreglu voru þrír handteknir, skammt frá vettvangi, vegna málsins.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en í henni kemur fram að engin stórvægileg meiðsli urðu á fólki vegna árásarinnar.

Þetta átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um verkefni í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Þess má geta að Menningarnótt fór fram í Reykjavík í gærkvöldi. Mikill erill var hjá lögreglu.



Í dagbókinni segir einnig að lögregla hafi handtekið mann fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar. Við handtöku hafi maðurinn streist mikið á móti og beitt lögreglumann ofbeldi. „Hann verður því einnig kærður fyrir brot gegn valdstjórninni,“ segir í dagbókinni.

Þá var annar handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt, en sá var að stofna til slagsmála. Samkvæmt dagbókinni reyndist hann einnig varsla fíkniefni.

Einn var handtekinn fyrir vopnaburð á almannafæri en hann var vopnaður tveimur hnífum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×