Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. ágúst 2026 13:11 Skoðanir eru skiptar varðandi útgáfu bæklingsins. Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa gefið út upplýsingabækling sem hælisleitendur munu fá afhentan, þar sem þeir eru meðal annars upplýstir um það að heimilisofbeldi og nauðganir séu bannaðar.
Bæklingurinn er rafrænn og telur níu blaðsíður. Þar segir að hælisleitendur ættu að kynna sér löggjöfina á Bretlandseyjum til að forðast það að lenda í vandræðum og eiga á hættu að verða sviptir stuðningi og fá umsókn sinni hafnað. Einn kafli bæklingsins fjallar um jafnrétti kynjanna en þar segir meðal annars að konur þarfnist ekki leyfis frá eiginmanni, föður eða bróður til að stunda nám, vinnu eða ferðast. Á öðrum stað segir að það sé ólöglegt að beita maka eða aðra fjölskyldumeðlimi hótunum og ofbeldi og að báðir aðilar þurfi að segja „já“ við kynlífi. „Þetta er kallað samþykki,“ segir í bæklingnum. Þá er enn fremur tekið fram að það sé ólöglegt að áreita fólk á almannafæri og taka myndir eða myndskeið af þeim án samþykkis. Bæklingurinn hefur verið gagnrýndur af baráttusamtökum, sem segja það kynda undir fordóma að gefa það til kynna á ákveðinn hópur, í þessu tilviki karlkyns hælisleitendur, þarfnist sérstakra leiðbeininga um það hvernig á að hegða sér. Chris Philips, innanríkisráðherra í skuggaríkisstjórn Íhaldsmanna, segir hins vegar að í stað þess að freista þess að „þjálfa“ unga karlkyns hælisleitendur í því hvernig koma á fram við konur, færi betur á því að vísa þeim úr landi. Samkvæmt BBC hefur tæplega 10.000 erlendum ríkisborgurum sem hlotið hafa dóm verið vísað úr landi frá því að gengið var til kosninga árið 2024, töluvert fleiri en áður.
Bretland Hælisleitendur Heimilisofbeldi Kynferðisofbeldi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira