Sport

Einar setti per­sónu­legt met á EM

Aron Guðmundsson skrifar
Einar Margeir er einn af íslensku keppendunum á EM sem nú stendur yfir. 
Einar Margeir er einn af íslensku keppendunum á EM sem nú stendur yfir.  mynd/sundfélag Akraness

Sundkappinn Einar Margeir Ágústsson bætti sig og setti annað persónulegt met á Evrópumeistaramótinu í 50 metra laug í París í morgun þegar hann synti 200 metra bringusund á 2:15.16. Þrír Íslendingar kepptu í undanrásum á þriðja degi mótsins.

Einar bætti sinn besta tíma um 0.82 sekúndur og var meðal þeirra fyrstu í sínum riðli frá upphafi. Hann endaði á því að koma fjórði í bakkann og var aðeins einum hundraðshluta úr sekúndu á eftir þriðja sætinu. Lokaniðurstaðan sú að Einar hafnaði í 32. sæti í heildina.

„Mjög þreyttur, en mjög sáttur með að ná þessari bætingu,“ sagði Einar eftir sundið.

Einar, sem bætti sig einnig í 100 metra bringusundi á fyrsta degi mótsins, var ánægður með hvernig hann útfærði sundið.

„Ég náði að vera mjög yfirvegaður fyrsta helminginn af sundinu. Náði að berjast alveg vel seinni helminginn.“

Vala Dís Cicero synti 200 metra skriðsund á 2:05.34 og varð í 43. sæti af 45 keppendum. Birnir Freyr Hálfdánarson synti 100 metra flugsund á 54.38, og hafnaði í 55.sæti af 66 keppendum.

„Mér leið bara ágætlega. Tíminn aðeins hægari en ég átti von á. Eitthvað sem ég þarf bara að skoða með þjálfaranum,“ sagði Birnir um sundið.

Á morgun keppir Guðmundur Leo Rafnsson í 50 metra baksundi. Hann syndir klukkan 8:19 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×