Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. ágúst 2026 10:03 Íbúar leituðu skjóls um leið og loftvarnasírenur fóru í gang. Í kjölfarið fengu þeir skilaboð um að netsamband yrði rofið í 30 mínútur. Getty/Anadolu/Daniel Ceng Stjórnvöld á Taívan stóðu í gær fyrir æfingu á fjarskiptatruflunum í kjölfar ímyndaðrar árásar eða innrásar af hálfu Kína. Æfingar vegna mögulegrar árása Kínverja eru reglubundin viðburður en þetta var fyrsta æfing Taívana þar sem gert var ráð fyrir umfangsmiklum fjarskiptatruflunum.
Æfingin var þáttur í árlegri almannavarnaæfingu, þar sem almenningur er þjálfaður í viðbrögðum við tilraunum Kína til að taka landið yfir. Almannavarnaæfingin fer fram á nokkra daga tímabili en í gær var hún haldin í borginni Taichung, þar sem þrjár milljónir íbúa voru látnir leita skjóls og voru svo án netsambands í 30 mínútur. „Ég tel þetta nauðsynlegt,“ hefur New York Times eftir Yu Chun-hsuan, nema sem leitaði skjóls í matöll verslanamiðstöðvar. „Við erum öll svo háð símunum okkar. Ef það brýst út stríð þá gætu þeir gripið til netárása eða skorið á fjarskipti.“ Kínverjar hafa stóraukið hernaðarumsvif sín í kringum Taívan á síðustu misserum og stjórnvöld á eyjunum hafa ekki síst áhyggjur af því að ef til innrásar kæmi, yrði klippt á fjarskiptastrengi neðansjávar. Þau hafa þegar sakað Kínverja um að hafa skemmt strengi sem liggja milli eyjanna en umfangsmeiri skemmdarverk gætu vakið ugg meðal íbúa og skapað neyðarástand. Borgaryfirvöld í Taichung sögðu æfinguna hafa gengið vel og að hún hefði ekki haft áhrif á neyðarþjónustu viðbragðsaðila.
Taívan Kína Hernaður Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fleiri fréttir Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Sjá meira