Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Kjartan Kjartansson skrifar 10. ágúst 2026 07:36 Maður á gangi á skrælnuðu grasi í garði í London í gær. Heitt og þurrt hefur verið í Bretlandi frá því í vor. AP/Kirsty Wigglesworth Meðalhiti í Vestur-Evrópu í júní og júlí var sá hæsti sem mælst hefur og sló fjögur ára gamalt met. Þúsundir dauðsfalla hafa verið rakin til hitabylgna þar frá því í vor.
Hitabylgjur hafa dunið á vestanverðri Evrópu frá því í maí og valdið meiriháttar gróðureldum og þurrkum. Aragrúi hitameta hefur verið settur víða um lönd þar. Meðalhitinn í júní og júlí mældist 21,62 gráður á selsíus samkvæmt evrópsku loftslagsstofnuninni Kópernikusi. AP-fréttastofan hefur eftir Samönthu Burgess frá evrópskri veðurfræðistofnuninni European Centre for Medium-Range Weather Forcasts að þaulsetið háþrýstikerfi hafi haldið heitu lofti yfir vestanverðri Evrópu í sumar. Þurrkarnir hafi síðan magnað upp hitann þar sem jarðvegur missir náttúruleg kælingaráhrif sín þegar hann þornar upp. „Þetta er skýrt dæmi um hvernig loftslagsbreytingar kynda undir hitaöfgum og hvernig hiti og þurrkur magna hvor annan upp í auknum mæli,“ segir Burgess. Þrátt fyrir þetta telur Kópernikusarstofnunin árið í ár aðeins það þriðja hlýjasta í mælingasögunni til þessa en bæði árin 2024 og 2025 voru hlýrri á þessum tímapunkti. Ýmislegt gæti þó breyst það sem eftir er árs þar sem afar öflugur El niño, náttúrulegt veðurfyrirbrigði í Kyrrahafi sem er almennt tengt við hærri meðalhita á jörðinni, er talinn í uppsiglingu fram á næsta ár.
Loftslagsmál Náttúruhamfarir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira