Er ekki bjartsýnn fyrir framtíð Newcastle Andri Broddason skrifar 30. júlí 2026 22:02 Alan Shearer er fyrrum leikmaður Newcastle en er ekki bjartsýnn á framtíð félagsins. Catherine Ivill/Getty Images Newcastle-goðsögnin Alan Shearer er að búast við slæmu tímabili hjá sínu gamla félagi eftir að það var tilkynnt í dag að Eddie Howe myndi ekki stjórna liðinu lengur. Hann telur að liðið geti ekki unnið neitt ef það heldur áfram að selja sína bestu leikmenn.
Newcastle tilkynnti í dag að Eddie Howe myndi ekki þjálfa liðið lengur. Hann hefur náð frábærum árangri með liðinu og vann Carabao-bikarinn árið 2025 sem var fyrsti bikar Newcastle í 70 ár. Ekki er búið að tilkynna hvaða þjálfari mun taka við honum hjá Newcastle. Í pistli sem Alan Shearer skrifaði fyrir BBC furðar hann sig á tímasetningu á þjálfaraskiptunum. Aðeins eru þrjár vikur þangað til enska úrvalsdeildin byrjar aftur og mun þá nýr þjálfari hafa lítinn tíma til að hafa sín áhrif á hópinn. Fyrir ári fór stjörnuleikmaður Newcastle, Alexander Isak, til Liverpool en félaginu þótti erfitt að finna leikmann í hans stað. Svo í sumar hafa Anthony Gordon og Sandro Tonali farið frá félaginu. Sömuleiðis er Bruno Guimares orðaður við Arsenal. Að missa þjálfarann ofan á að missa alla mikilvægu leikmennina mun hafa gríðarleg áhrif á gengi félagsins á komandi tímabili. Liðið getur ekki verið á toppi deildarinnar ef það selur alla sína bestu leikmenn. Félagið er einfaldlega að breytast. Nýir eigendur og stjórnendur lofuðu frábæru gengi og voru tilbúnir að eyða himinháum fjárhæðum í leikmenn en nú virðast áherslurnar vera aðrar.
Enski boltinn Newcastle United Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira