Viðskipti innlent

Fyrsta apó­tek Víkur opnað

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Edda Hermannsdóttir er forstjóri Apótekarans. Tilkynnt var í mars að apótek í eigu Lyfja og heilsu myndu sameinast undir vörumerki Apótekarans.
Edda Hermannsdóttir er forstjóri Apótekarans. Tilkynnt var í mars að apótek í eigu Lyfja og heilsu myndu sameinast undir vörumerki Apótekarans. Innsent

Íbúar Mýrdalshrepps hafa eignast sitt fyrsta apótek sem verður rekið undir vörumerki Apótekarans. Það mun bjóða upp á alhliða lyfja- og heilbrigðisþjónustu ásamt fjölbreyttu úrvali af vörum.

Íbúafjöldi sveitarfélagsins hefur tvöfaldast á tíu árum auk þess sem fjöldi ferðamanna sækir Víkurþorp heim, allt árið um kring. Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru íbúar sveitarfélagsins 531 þann 1. janúar 2016 en voru í ár orðnir 1004.

„Við erum spennt að opna fyrsta apótekið í Vík og geta þjónustað bæði heimamenn og ferðaþjónustuna á svæðinu. Mikil umferð er um Vík allt árið um kring og apótekið er vel staðsett í nýju og glæsilegu húsnæði í hjarta bæjarins. Opnunin er mikilvægur áfangi fyrir okkur og styrkir þjónustunet Apótekarans á Suðurlandi,“ er haft eftir Eddu Hermannsdóttur forstjóra Apótekarans í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×