„Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 12:03 Andoni Iraola er annar Spánverjinn sem stýrir Liverpool, á eftir Rafa Benítez. epa/ADAM VAUGHAN Sean Dyche, fyrrverandi knattspyrnustjóri Burnley, Everton og fleiri liða, segir að Andoni Iraola, nýr stjóri Liverpool, spili neðri deildar fótbolta en á háu stigi.
Iraola tók við Liverpool í sumar eftir að hafa gert góða hluti með Bournemouth. Á síðasta tímabili endaði Suðurstrandarliðið í 6. sæti og vann sér þátttökurétt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu þess. Bournemouth fór rólega af stað eftir að Iraola tók við liðinu haustið 2023 og vann ekki fyrstu átta leikina undir hans stjórn. En síðan birti til og Dyche segir að Iraola hafi aðlagað sig að ensku úrvalsdeildinni. „Iraola spilar neðri deildar fótbolta en á háu stigi. Þeir snúa og snúa þér og neyða þig til uppgjafar. Þetta er hágæða og orkumikil útgáfa,“ sagði Dyche sem stýrði Everton til 3-0 sigurs á Bournemouth þegar Iraola var nýtekinn við. Þegar liðin mættust aftur var annað uppi á teningnum. „Næst þegar við spiluðum við þá keyrðu þeir á okkur, sneru okkur við, bakverðirnir þurftu stöðugt að snúa við og hlaupa í átt að eigin marki og miðverðirnir héldu að þeir fengju aldrei hvíld. Þeir voru allt annað lið og hann hefur unnið frábært starf.“ Liverpool vann 4-2 sigur á Sunderland í fyrsta leik sínum undir stjórn Iraolas um helgina. Leikið var í Nashville í Bandaríkjunum. Næsti leikur Liverpool er gegn Wrexham í New York á morgun. Fyrsti leikur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni er gegn Newcastle United sunnudaginn 23. ágúst.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Hausverkur fyrir Iraola Miðvarðarstaðan olli mörgum stuðningsmönnum Liverpool hugarangri síðasta vetur er liðið lék undir stjórn Arne Slot. Það virðist vera hausverkur sem eftirmaður hans erfir. 27. júlí 2026 23:30 Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Ítalski framherjinn Federico Chiesa segist vonast eftir „nýju upphafi“ hjá Liverpool undir stjórn nýja aðalþjálfarans Andoni Iraola eftir að hafa aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á tveimur tímabilum undir stjórn forvera hans, Arne Slot. 27. júlí 2026 09:31 Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Spánverjinn Andoni Iraola stýrir Liverpool í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið mætir Sunderland í æfingaleik í Bandaríkjunum. Hann gefur mörgum ungum leikmanni risastórt tækifæri. 25. júlí 2026 21:02 Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira
Hausverkur fyrir Iraola Miðvarðarstaðan olli mörgum stuðningsmönnum Liverpool hugarangri síðasta vetur er liðið lék undir stjórn Arne Slot. Það virðist vera hausverkur sem eftirmaður hans erfir. 27. júlí 2026 23:30
Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Ítalski framherjinn Federico Chiesa segist vonast eftir „nýju upphafi“ hjá Liverpool undir stjórn nýja aðalþjálfarans Andoni Iraola eftir að hafa aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á tveimur tímabilum undir stjórn forvera hans, Arne Slot. 27. júlí 2026 09:31
Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Spánverjinn Andoni Iraola stýrir Liverpool í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið mætir Sunderland í æfingaleik í Bandaríkjunum. Hann gefur mörgum ungum leikmanni risastórt tækifæri. 25. júlí 2026 21:02