Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. júlí 2026 00:05 Alls hefur 42 þúsund hektara svæði brunnið í suðvesturhluta Frakklands, sem er fjórum sinnum stærra en Parísarborg. EPA/DAMIEN REMBERT Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni.
Slökkviliðsmenn vinna nú í óðaönn við að ná tökum á stærðarinnar gróðureldum sem loga nærri borginni Bordeaux í Frakklandi. Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, segir eldinn færast í átt að Bordeaux í færslu á X. Í gærnótt hafi fimmtíu þúsund manns verið látin yfirgefa heimili sín sunnan við borgina, í Gironde-héraði. Í Gironde koma um fimm þúsund viðbragðsaðilar að slökkvi- og björgunaraðgerðum, þar af 2.500 slökkviliðsmenn. Hermenn og lögreglumenn sjá um rýmingu og aðstoð við björgunaraðgerðir. Fyrr í vikunni létust tveir slökkviliðsmenn við slökkvistörf nærri Bordeaux. Alls hefur 42 þúsund hektara svæði brunnið í suðvesturhluta Frakklands, sem er fjórum sinnum stærra en Parísarborg, segir í umfjöllun AP. 98 þúsund hektarar víðs vegar um landið það sem af er ári. Nicolas Braz, einn þeirra sem leiða slökkvistarf, sagði eldinn bæði óútreiknanlegan og óviðráðanlegan. Alls hafa rúmlega 220 þúsund íbúar í suðvesturhluta Frakklands flúið heimili sín. Eldurinn sé fimmtán kílometra frá Bordeaux þar sem hann er næstur borginni en í henni búa 268 þúsund manns. Thomas Cazenave, borgarstjóri Bordeaux, hafi sagt að ekki stæði til að rýma borgina að svo stöddu. Takmarkanir hafa verið settar á flugumferð á Bordeux-flugvelli til að auðvelda störf viðbragðsaðila, segir í umfjöllun BBC. Takmarkanirnar hafi áhrif á allt áætlunarflug en miklar tafir hafi verið á flugvellinum í dag. Gróðureldarnir á Ávila-svæðinu á Spáni eru einir þeir stærstu í sögu landsins en yfirvöld hafa lýst yfr neyðarástandi þar í landi. Alls hafa 77 þúsund hektarar af landi brunnið, að sögn Söru Aagesen, umhverfisráðherra Spánar. Níutíu þúsund manns hafa flúið heimili sín á Avíla-svæðinu og í Madrídar-héraði. Meðal þeirra sem hafa flúið heimili sín á Spáni eru íslensk hjón. Á laugardag kviknuðu einnig eldar nálægt borginni Valencia. Búist var við þurrki og miklum hita á svæðinu í dag sem gæti gert eldinum kleift að breiðast frekar út um svæðið. Einn lést vegna eldanna í úthverfi Valencia, en það er fyrsta skráða dauðsfall vegna þessa gróðurelda á Spáni. Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, heimsótti svæðið vestur af Madrídarborg sem varð illa fyrir gróðureldunum og sagði erfiða tíma vera fram undan. Semja þyrfti um „stórt opinbert samkomulag“ um neyðarástand í loftlagsmálum.
Spánn Frakkland Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Gróðureldar Tengdar fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“ 25. júlí 2026 16:01 Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25. júlí 2026 14:04 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Komst undan ásamt fjölskyldunni „Þetta er auðvitað ógnvænlegt en maður óskar fólkinu sem býr hérna velfarnaðar og að þetta gangi hratt yfir. Maður sendir hlýhug til þeirra sem þetta snertir með beinni hætti en okkur sem erum nú bara túristar hér í sumarfríi.“ 25. júlí 2026 16:01
Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ „Í þorpinu hjá henni var alveg dimmt og það rigndi niður ösku frá himninum. Það var svolítið súrrealískt. Það má segja að þetta hafi verið dálítið óhugnanlegt.“ 25. júlí 2026 14:04