Elfsborg vann Malmö eftir stoðsendingu Júlíusar Andri Broddason skrifar 26. júlí 2026 16:43 Júlíus Magnússon gaf stoðsendingu í sigri á Malmö í sænsku úrvalsdeildinni. Mynd/Elfsborg Elfsborg vann Malmö 2-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Eftir fjörugan fyrri hálfleik náði Elfsborg að sigla sigrinum heim þrátt fyrir mikla sókn Malmö í seinni hálfleik.
Júlíus Magnússon var í byrjunarliði Elfsborg og gaf stoðsendingu strax á fimmtu mínútu leiksins. Þá gaf hann á Arber Zeneli sem skaut frábæru skoti fyrir utan teig sem Robin Olsen var ekki tilbúinn fyrir í marki Malmö. Malmö ætlaði ekki að gefast upp og jafnaði Jens Stryger Larsen metin með góðum skalla á 22. mínútu. Elfsborg náði svo aftur forystunni tíu mínútum síðar þegar Mamoh Kamara skoraði. Í seinni hálfleik var Malmö sterkari aðilinn en náði ekki að skapa sér nógu góð færi til þess að jafna leikinn. Á 73. mínútu leiksins var Leo Östman, leikmaður Elfsborg, að sleppa inn fyrir vörn Malmö. Malte Frejd Palsson, varnarmaður Malmö, togaði hann niður og fékk verðskuldað rautt spjald þar sem hann var aftasti varnarmaður liðsins. Rauða spjaldið setti virkilegt högg í sóknarleik Malmö það sem eftir var leiksins og náði liðið ekki að jafna metin. Daníel Tristan Gudjohnsen sat á bekknum hjá Malmö allan leikinn. Gabríel Snær Gunnarsson var sömuleiðis á bekk Elfsborg allan leikinn. Með sigrinum hoppaði Elfsborg upp um þrjú sæti í sænsku úrvalsdeildinni og situr liðið núna í sjötta sæti deildarinnar. Eitt af liðunum sem Elfsborg hoppaði yfir var Malmö sem er með stigi minna í áttunda sæti.
Sænski boltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira