Björgvin Karl og liðsfélagar hans í þriðja sætinu eftir fyrsta dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2026 08:30 Lið CrossFit Oslo Kriger í öllu sínu veldi, talið frá vinstri: Björgvin Karl Guðmundsson, Kristin Holte, Tola Morakinyo og Oda Lundekvam. @odalundekvam Íslenska CrossFit-goðsögnin Björgvin Karl Guðmundsson keppir nú í liðakeppni á heimsleikunum í Kaliforníu og liðið hans er í toppbaráttunni. Alíslenska liðið stóð sig líka vel á degi eitt.
Björgvin Karl og liðsfélagar hans í CrossFit Oslo Kriger eru í þriðja sætinu eftir tvær greinar, tuttugu stigum á eftir toppliði Camp Rhino CrossFit frá Bandaríkjunum og fimmtán stigum á eftir CrossFit Mayhem sem er líka frá Bandaríkjunum. Með Björgvini í liði eru fyrirliðinn Kristin Holte, Oda Lundekvam og Tola Morakinyo en sá síðastnefndi keppti einu sinni með Anníe Mist Þórisdóttur í liði á heimsleikunum. Oslóliðið byrjaði ekki nógu vel með því að ná bara tíunda sætinu í fyrstu grein þar sem það ýtti saman sleða en bætti stöðu sína verulega með því að ná öðru sæti í seinni grein dagsins sem var handstöðuboðhlaup. Lið CrossFit Reykjavíkur er í sjötta til sjöunda sæti eftir þennan fyrsta dag. Liðið er með 135 stig sem er 25 stigum minna en lið Björgvins Karls. Í liði CrossFit Reykjavíkur eru þau Bjarni Leifs Kjartansson, Rökkvi Hrafn Guðnason, Elín Birna Hallgrímsdóttir og Guðbjörg Valdimarsdóttir. Íslensku krakkarnir voru í áttunda sæti í fyrstu grein og svo í níunda sæti í annarri grein en tuttugu lið taka þátt í heimsleikunum að þessu sinni. Keppni heldur áfram í dag og þá fara fram þrjár greinar. Keppni einstaklinga heldur líka áfram í dag eftir eins dags frí.
CrossFit Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Íslenski boltinn Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti Fleiri fréttir Gefa út yfirlýsingu til varnar Fannari eftir „öfgafulla rangtúlkun“ Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Enskt hlaðborð á laugardegi Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Sjá meira