Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Samúel Karl Ólason skrifar 22. júlí 2026 13:07 Gianni Infantino og Donald Trump hafa verið miklir mátar um þó nokkuð skeið. AP/Matt Rourke Donald Trump vill að Gianni Infantino, forseti FIFA, verði næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir tveir eru góðir vinir og er Trump sagður sannfærður um að Infantino njóti mikillar virðingar um heiminn allan. Trump mun þar að auki telja að Infantino hafi sérstakan hæfileika í því að skapa samstöðu.
Þetta er samkvæmt heimildum New York Post, sem hefur um árabil verið uppáhaldsfjölmiðill Trumps. Hvíta húsið hefur ekki svarað fyrirspurn Fox News um málið. António Guterres, núverandi framkvæmdastjóri SÞ, lætur af störfum í lok þessa árs og er leitin að arftaka hans þegar hafin. Hver sem tekur við starfinu þarf blessun allra fimmtán meðlima öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar á meðal fimm ríkjanna sem eru með fast sæti þar, og í kjölfarið þarf hann að sigra kosningu á allsherjarþinginu. Kosningarnar eiga að fara fram seinna á þessu ári, áður en Guterres lætur af störfum. Í frétt NY Post segir óljóst hvort Infantino vilji starfið yfir höfuð eða hvort Trump hafi rætt það við hann. Trump er þó sagður ósáttur með þá sjö frambjóðendur sem þykja líklegastir til að fá starfið. Án þess að staðfesta fregnir NY Post sagði Paolo Zampolli, sérstakur erindreki Trumps, að enginn annar en hann gæti fengið svo „snilldarlega hugmynd“. Hann sagði að Infantino myndi standa sig frábærlega í starfi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Infantino og Trump hafa verið vinir um nokkuð skeið. Sá fyrrnefndi var viðstaddur innsetningarathöfn Trumps í fyrra og hefur á undanförnum árum verið tíður gestur í Mar a Lago, sveitaklúbbi og heimili Trumps í Flórída. Síðan hann varð aftur forseti í fyrra hefur Trump dregið verulega úr fjárveitingum Bandaríkjanna til Sameinuðu þjóðanna, dregið Bandaríkin úr mörgum af nefndum þess og stofnunum eins og WHO, UNESCO og mannréttindaráðinu og hefur hann einnig stofnað svokallað friðarráð, sem á að vera sams konar stofnun og Sameinuðu þjóðirnar. Ekki óumdeildur Infantino stendur frammi fyrir annarri kosningu. Í mars á næsta ári verður allsherjarþing FIFA haldið og verður þá ákveðið hvort hann eigi að sitja fjórða tímabilið sem forseti sambandsins, sem hann hefur lýst yfir að hann vilji gera. Forsetinn er ekki óumdeildur í starfi sínu og hefur verið gagnrýndur af mikilvægum mönnum innan FIFA. Nú síðast af Javier Tebas, forseta spænsku deildarinnar, sem vill að Infantino segi af sér. Sjá einnig: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Ákvörðun hans að fella úr gildi rautt spjald hins bandaríska Folarin Balogun, að kröfu Trumps, var einnig ekki vinsæl. Flestir innan FIFA eru þó sagðir tilbúnir til að kjósa Infantino í embætti aftur.
Donald Trump FIFA Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira