Lífið

Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rodrigo virðist ekki hafa látið úrkomuna hafa áhrif á innlifun sína á hlaupum við bakka íslenskrar ár undir nýjum slaga sínum. Til hægri sést hún á Keflavíkurflugvelli með nýja kærastanum.
Rodrigo virðist ekki hafa látið úrkomuna hafa áhrif á innlifun sína á hlaupum við bakka íslenskrar ár undir nýjum slaga sínum. Til hægri sést hún á Keflavíkurflugvelli með nýja kærastanum.

Bandaríska poppstjarnan Olivia Rodrigo dvaldi hér á landi á dögunum og vakti nokkra kátínu meðal íslenskra aðdáenda sinna. Söngkonan lenti í Keflavík árla morguns fimmtudaginn 17. júlí eftir næturflug á fyrsta farrými með Icelandair frá Portland.

Rodrigo yfirgaf landið í gær samkvæmt heimildum Vísis og hefur nú birt myndband á TikTok-reikningi sínum þar sem hún sést á harðahlaupum í grennd við það sem virðist vera Helgufoss í Mosfellsdal. Undir hljómar lagið „Stupid Song" af nýjustu breiðskífu hennar „You seem pretty sad for a girl so in love“ sem kom út 12. júní síðastliðinn.

@livbedumb

♬ stupid song - Olivia Rodrigo

Söngkonan heimsótti meðal annars Reykjavík Record Shop á föstudaginn þar sem hún festi kaup á nokkrum vínylplötum. Frá þessu segir í færslu sem verslunin birti sjálf á TikTok, en þar kemur fram að starfsfólk verslunarinnar hafi lofað að segja ekki frá heimsókninni fyrr en í dag.

@reykjavik.record.shop News flash: Olivia Rodrigo droppaði við á föstudaginn í Reykjavík Record Shop og keypti nokkrar plötur og spjallaði við okkur. Mjög næs og skemmtileg og við lofuðum að segja ekkert fyrir en í dag 💖🥰 #reykjavíkrecordshop #oliviarodrigo #vinyl #iceland #indierecordshop ♬ stupid song - Olivia Rodrigo

Julian Croonenberghs, nýr kærasti söngkonunnar, sást með Rodrigo á leið frá Íslandi áleiðis til New York. Croonenberghs starfar sem sjóðstjóri hjá framtakssjóðnum Hg Capital. Áður vann hann sem greinandi hjá Goldman Sachs og lék með karlalandsliði Bandaríkjanna í hokkí. Hann er útskrifaður frá Brown-háskóla.

Rodrigo hyggur á tónleikaferðalag, The Unraveled Tour, til að fylgja eftir nýju plötunni. Túrinn hefst 25. september í Bandaríkjunum og teygir sig síðar til Evrópu og Bretlands.

Olivia Rodrigo er ein vinsælasta popptónlistarkona samtímans og hefur unnið til þriggja Grammy-verðlauna á ferlinum. Hún sló fyrst rækilega í gegn árið 2021 með laginu „Drivers license" og hefur síðan þá sent frá sér breiðskífurnar Sour og Guts, auk þeirrar nýjustu.


Tengdar fréttir

Þetta eru bestu lög 21. aldarinnar

Tónlistartímaritið Rolling Stone hefur tekið saman lista yfir 250 bestu lög 21. aldarinnar. Eins og við mátti búast er listinn ekki óumdeildur og trónir sömuleiðis nokkuð óvænt lag á toppnum.

Lauf­ey fagnaði með Oli­viu Rodrigo og Chappell Roan

Stórstjarnan og tónlistarkonan Laufey Lín heldur ótrauð áfram ævintýrum sínum vestanhafs þar sem hún hefur slegið í gegn. Helginni eyddi hún í Los Angeles þar sem hún er búsett með engum öðrum en Oliviu Rodrigo og Chappell Roan, sem eru með stærstu tónlistarstjörnum heims í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.