Lífið

Bréf um góða stemningu um borð í Titanic til sölu

Freyja Þórisdóttir skrifar
Bréfið var skrifað örfáun dögum áður en skipið fórst.
Bréfið var skrifað örfáun dögum áður en skipið fórst. Getty/Henry Aldridge & Son Ltd

Bréf sem var skrifað af farþega skipsins Titanic dögum áður en hann lést verður boðið upp á sunndaginn og er áætlað að um sex milljónir fáist fyrir það. Í bréfinu, sem er dagsett miðvikudaginn 10. apríl það örlagaríka ár 1912 og póststimplað í Queenstown, skrifaði hann um gott veður og góðan anda um borð í skipinu.

Henry Price Hodges skrifaði bréfið til vinar síns, Hectors Young, en Hodges fór um borð í skipið í bresku hafnarborginni Southampton sem farþegi á öðru farrými.

Farmiðann hafði hann borgað þrettán pund fyrir, eða um tvö þúsund krónur íslenskar, og var hann á leið til Boston til að heimsækja ættingja sem farþegi númer 250643. Þetta kemur meðal annars fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið.

Vonsvikinn að pabbi kom ekki með

Síðasta viðkomuhöfn Titanic þann 11. apríl 1912 áður en skipið lagði af stað yfir Atlantshafið var bærinn Queenstown í Cork-sýslu á Írlandi sem nú heitir Cobh. 


Herra Hodges skrifaði í bréfinu til vinar síns:

„Kæri Hector,

„Kærar þakkir fyrir símskeytið og fyrir góðar óskir. Þetta var vingjarnlegt og hugulsamt og ég kann vel að meta það, og viltu koma þökkum mínum á framfæri við félagsmenn okkar.

„Var það ekki gott af forsetanum að koma og kveðja mig? Ég held næstum að ég hefði getað sannfært hann um að koma með. Við höfum haft það fínt hingað til.

„Maður finnur ekkert fyrir hreyfingum skipsins, en veðrið er mjög gott.

„Á efsta þilfari eru um tvö hundruð strákar (frá 20 ára aldri og upp úr) sem ganga um og syngja, aðrir spila dómínó og spil í setustofunum, sumir lesa, sumir skrifa, allt er allt öðruvísi en maður myndi búast við að sjá á sjó.

„Segðu pabba þínum að ég sé mjög vonsvikinn að hann hafi ekki komið, en ég veit að hann gat ekki að því gert, og það var meira en búist var við að bróðir þinn kæmi í staðinn. (Allt fyrir þetta en ekki hann) Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur.

„Vertu sæll Hector

„Bestu kveðjur

„Með vinsemd og virðingu

„H.P. Hodges.“


Hodges lést eftir að Titanic sökk fimm dögum seinna, þann 15. apríl 1912. Bréfið verður boðið upp hjá Henry Aldridge and Son í Devizes, Wiltshire, á sunnudaginn kemur, þann 26. júlí, er fram kemur í umfjöllun BBC.

Þar er einnig haft eftir umsjónarmanni uppboðsins Andrew Aldridge að bréf skrifuð af farþegum á öðru farrými væru með þeim sjaldgæfustu.

„Þetta bréf gefur okkur sögulega ómetanlega innsýn í hvernig lífið var um borð í frægasta skipi sem siglt hefur á höfunum fyrir farþega á öðru farrými,“ sagði hann og er bætt við að Hodges „lýsir skipinu og samfarþegum og hvernig þeir eyddu tímanumum borð. Samt, rúmum fjórum dögum síðar, lá Titanic á botni Norður-Atlantshafsins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.