Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2026 08:32 Ellie Turner var sátt með hringinn og Justin Medeiros er greinilega mjög sáttur með unnustu sína. Youtube/Justin Medeiros Heimsleikarnir í CrossFit hefjast á morgun, miðvikudag, og meðal keppenda verður CrossFit-fólkið Justin Medeiros og Ellie Turner.
Þau skötuhjúin gerðu þessa heimsleikaviku enn eftirminnilegri með því að byrja hana á því að trúlofa sig. Medeiros fór niður á skeljarnar og bað Turner á einni æfingu þeirra fyrir heimsleikana. „Æfingafélagar út ævina,“ skrifaði Ellie Turner við mynd af unnusta sínum á hnjánum fyrir framan hana. Medeiros, sem er frá Bandaríkjunum, komst á heimsleikana með því að ná einu af sjö sætum í boði á lokaundanúrslitamótinu en Ellie Turner, sem er frá Ástralíu, tryggði sér farseðilinn á Torian Pro-undanúrslitamótin í Brisbane í Ástralíu. View this post on Instagram A post shared by Ellie Turner (@elliebecturner) Hinn 27 ára gamli Medeiros vann heimsleikana 2021 og 2022 og vann bronsverðlaun á heimsleikunum 2020. Hann endaði í sjöunda sæti í fyrra og áttunda sæti árið áður. Hin 31 árs gamla Turner var að komast á heimsleikana í fyrsta sinn síðan 2023 en besti árangur hennar á leikunum er átjánda sætið árið 2022. Fyrir áhugasama má sjá hvernig bónorðið gekk fyrir sig á YouTube-síðu Justin Medeiros en þátturinn fékk nafnið „Stærsta stundin fyrir CrossFit-leikana.“ Hann fékk hana til að taka létt hlaup með sér og kom henni síðan á óvart með bónorði. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=ooHgEiwPOrg">watch on YouTube</a>
CrossFit Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Rúnar Páll kynnti teymið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Sjá meira