Vill færa Bretum von á nýjan leik Samúel Karl Ólason skrifar 20. júlí 2026 13:18 Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, og eiginkona hans Marie-France van Heel. AP/Kirsty Wigglesworth Andy Burnham, nýr forsætisráðherra Bretlands, segir að breskir stjórnmálamenn verði að standa sig betur. Hann segist skilja að kjósendur séu komnir með upp í kok af pólitík í Bretlandi og að yfirvöld og stjórnmálin verði að vinna í hag almennings. Hann segist vilja færa Bretum von á nýjan leik.
Eftir að Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi leiðtogi Verkamannaflokksins, fór á fund Karls konungs í morgun og sagði af sér, fór Burnham til konungsins og fékk embættið. Í kjölfarið hélt hann ræðu fyrir utan Downingstræti 10, þar sem breskir forsætisráðherrar halda til. Í þeirri ræðu sagðist Burnham meðvitaður um ólgu undanfarinna ára í breskri pólitík og að hann væri sjöundi forsætisráðherrann á einungis tíu árum. Hann sagði stjórnmálamenn hafa brugðist þjóðinni og að tryggja þyrfti á nýjan leik að stjórnmálin og yfirvöld virkuðu í þágu þjóðarinnar. Þá væri mikilvægt að koma á stöðugleika. Sjá einnig: „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Burnham sagðist vilja stofna nýtt efnahags- og stjórnmálamódel í Bretlandi. Hann vildi auka iðnað í Bretlandi á nýjan leik og draga úr framfærslukostnaði. Bretar eiga það sameiginlegt með mörgum þjóðum heims að verðlag hefur hækkað töluvert. Margir telja lífskjarakrísu ríkja í Bretlandi, eins og víða annarsstaðar. Starmer hét því einnig á sínum tíma að sporna gegn þessari þróun. Hann sagði mörg mistök hafa verið gerð á níunda áratug síðustu aldar, sérstaklega varðandi einkavæðingu og að þá hefði verið grafið undan ríkinu. Gaf hann til kynna að ríkið gæti byrjað að hafa meiri áhrif á efnahagssviðinu í Bretlandi. Andy Burnham og Karl Bretakonungur í Buckinghamhöll í morgun.AÐ/Aaron Chown Í næsta mánuði ætlar forsætisráðherrann að ferðast um Bretland og ræða við kjósendur í undirbúningi fyrir útgáfu nýrrar tíu ára áætlunar. Hann sagðist ætla að gefa þessari vinnu allt sem hann gæti og að markmiðið væri að sameina bresku þjóðina. „Látum þetta vera tímapunktinn þegar Bretar byrja að trúa á nýjan leik. Tímapunktinn þar sem við öðlumst von aftur,“ sagði Burnham í ræðunni, sem sjá má í spilaranum hér að neðan.
Bretland England Skotland Wales Norður-Írland Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira