„Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Samúel Karl Ólason og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 20. júlí 2026 07:39 Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, verður forsætisráðherra Bretlands í dag. Sá sjöundi á áratug. PA, AP/Gareth Fuller Andy Burnham, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, tekur við sem forsætisráðherra landsins í dag þegar Keir Starmer hverfur á braut. Starmer mun flytja sína síðustu ræðu sem forsætisráðherra nú fyrir hádegið áður en hann og arftaki hans halda á fund konungs í Buckingham höll, þar sem Karl konungur mun leggja blessun sína yfir valdaskiptin.
Að því loknu mun Burnham halda sína fyrstu ræðu fyrir utan bústað forsætisráðherra í Downingstræti 10. Forsætisráðherrann verðandi er 56 ára gamall og hefur að undanförnu starfað sem borgarstjóri Manchester-borgar í norðurhluta Englands og hefur gjarnan verið kallaður „konungur norðursins“. Breskir miðlar eru þegar farnir að vitna í ræðu hans þar sem sagt er að hann muni lofa Bretum meira andrými og þá segist hann vilja leggja áherslu á að koma ró á breskt stjórnmálalíf og að tekið verði á hlutunum af ábyrgð og festu. Burnham segist ætla að „endurtengja“ bresku þjóðina og leggja áherslu á málefni sem skipta fólk máli, eins og hækkandi verðlag og að bæta þjónustu. Samkvæmt BBC mun Burnham tilkynna ætlanir um aukna olíu- og gasvinnslu í Norðursjó. Sjá einnig: Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mikil ólga hefur verið í breskum stjórnmálum allt frá því þeir fóru úr Evrópusambandinu og verður Burnham fjórði forsætisráðherrann í stuttri valdatíð Karls Bretakóngs, sem tók við árið 2022. Hinir þrír eru Starmer, Rishi Sunak og Liz Truss. Síðar í dag skýrist einnig hvernig Burnham mun skipa í ráðherraembætti sín. Nú þegar hefur kvisast út að Shabana Mahmood verði næsti fjármálaráðherra og að Ed Miliband taki við sem utanríkisráðherra. Áhugasamir geta fylgst með helstu vendingunum í Bretlandi og ræðu Burnhams í spilaranum hér að neðan.
Bretland England Skotland Norður-Írland Wales Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira