Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júlí 2026 19:19 Ferðamaður í Sevilla myndar skilti sem sýnir 44 stiga hita. Getty/Macarena Perez Spáð er að þriðja stóra hitabylgja sumarsins skelli á Spáni í næstu viku. Hiti byggist upp frá deginum í dag, hitabylgja verður ríkjandi frá þriðjudegi og mun hiti ná hámarki á fimmtudaginn, samkvæmt spám.
Háhiti yfir daginn mun fara yfir 40 gráður víða um landið, nokkra daga í röð. Þá er einnig spáð heitum nóttum yfir tímabilið. Yfirvöld hvetja íbúa til að fara með gát meðan hitabylgjan gengur yfir og forðast með öllu líkamlega áreynslu yfir miðjan daginn. Sérstök ástæða er fyrir eldra fólk og fólk sem glímir við hjartasjúkdóma að fara með gát. Hitabylgjan mun stórauka hættu á gróðureldum. Veðurstofa Spánar hefur sérlegar áhyggjur af þrumuveðri seinni part dags þar sem eldingar geti komið bruna af stað ef ekki fylgir nægjanleg rigning með. Gróðureldar geisa þegar í landinu og teljast tveir þeirra stjórnlausir. Sá stærri logar nærri borginni Zaragoza, norðaustarlega á Spáni. Sumarið á Spáni í ár er þegar komið í sérflokk en hiti síðastliðinn einn og hálfan mánuð, frá 1. júní til 15. júlí, var 3,3 gráðum yfir meðalhita. Var þar með bætt meðalhitamet fyrir þetta tímabil um 0,4 gráður. Hið fyrra met var aðeins tveggja ára gamalt, frá árinu 2024. Greint hefur verið frá því að hitinn á Spáni í júní hafi kostað meira en þúsund mannslíf. Mikill hiti hefur plagað Evrópubúa síðustu misseri. Getty/Claudia Chieppa Hitabylgjan sem nú byggir upp styrk sinn orsakast mest af flæði heits lofts norður á bóginn frá Sahara-eyðimörkinni. Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur þegar lýst því yfir að júnímánuður hafi verið sá heitasti í Evrópu frá upphafi mælinga. Meðalhitastig jarðar hefur aðeins einu sinni mælst hærra í júní. Gríðarlegur hiti mældist um allt meginland Evrópu í hitabylgjunni seinni part júní. Til að mynda náði hiti fjörutíu gráðum í Ungverjalandi, Þýskalandi og Austurríki og hæsti hiti í sögu Danmerkur var mældur, upp á 37 gráður, og var þar með slegið rúmlega 50 ára gamalt hitamet.
Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Spánn Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira