GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Jónas Sen skrifar 18. júlí 2026 07:01 Jón Jónsson syngur meðan Guðrún Ýr og Reynir Snær spila undir. Það ríkti mikil tilhlökkun eitt fagurt en blautt sumarkvöld þegar tveir vinsælir tónlistarmenn sameinuðu krafta sína í Bæjarbíói. Fyrirfram mátti velta því fyrir sér hvernig hin yfirvegaða og innhverfa nálgun Guðrúnar Ýrar Eyfjörð, GDRN, myndi falla að þeirri takmarkalausu, og oft ofvirku, orku sem einkennir Jón Jónsson. Þetta hefði hæglega getað orðið eins og hjónaband rauðbrystings og risaeðlu. Á köflum var það nákvæmlega þannig, en undarlega oft myndaðist þó magnað jafnvægi.
Jón Jónsson & GDRN í Bæjarbíó fimmtudaginn 16. júlí 2026. Þrátt fyrir að GDRN og Jón væru aðalnöfn kvöldsins varð fljótt ljóst að þriðji maðurinn á sviðinu, gítarleikarinn Reynir Snær Magnússon, var raunverulegur burðarás hljóðheimsins. Með aðeins þrjá einstaklinga á sviði hvíldi mikil ábyrgð á honum að sjá til þess að enginn saknaði heillar hljómsveitar. Hann lék bæði á rafgítar og bassa og bjó til tilraunakenndan hljóðheim þar sem hann hljómaði stundum eins og þrír gítarleikarar. Það var þó aldrei brella brellunnar vegna; effektarnir þjónuðu lögunum. Reynir vissi nákvæmlega hvenær örlítið hljóð í bakgrunni sagði meira en langt og þreytt gítarsóló. Ofnotuð falsetta Lagavalið dró fram ólíkar hliðar flytjendanna. Lög á borð við „Tímavél“, „Hugarró“, „Næsta líf“ og „Ef ástin er hrein“ öðluðust líf í látlausum en úthugsuðum útsetningum. Það sem gerði flutninginn þó sérstaklega áhugaverðan var hversu gjörólík raddbeiting þeirra Guðrúnar og Jóns er, með sínum kostum og göllum. GDRN og Jón hafa býsna ólíka nálgun. Guðrún Ýr lék smekklega á hljómborð og greip einnig í gítar. Söngur hennar byggir að miklu leyti á nálægð og andardrætti. Í röddinni má greina áhrif frá djassi og R&B þar sem hún reynir ekki að yfirbuga salinn heldur dregur hlustandann til sín. Þessi nálgun naut sín vel í rólegri lögum kvöldsins, en það fór þó ekki fram hjá neinum að raddsvið hennar hefur sín takmörk. Til að brúa bilið, þegar tónarnir leituðu ofar en náttúrulegt svið hennar leyfði, reiddi hún sig iðulega á falsettu. Þegar á leið tónleikana varð þessi sífellda falsettunotkun dálítið þreytandi og dró óneitanlega kraftinn úr heildarflutningnum. Beyoncé-stælar Jón Jónsson nálgaðist salinn aftur á móti af hinum endanum. Hann spilaði á gítar og dró hlustandann ekki varlega að sér, heldur greip hann hálstaki og skipaði honum að skemmta sér. Hann hafði gott vald á salnum og rödd sem fyllti rýmið áreynslulaust. En þessi takmarkalausa orka kallaði stundum á mun meiri aga og fókus. Jón átti það til að týna sér í eigin ákefð, sem kom sennilega verst niður á laginu „Þegar ég sá þig fyrst“. Á plötu er það afskaplega fallegt í látleysi sínu, en hér var það keyrt upp í ofhlaðinn Beyoncé-stíl, stappfullt af raddlegum krúsidúllum sem gerðu útkomuna hreinlega væmna í stað þess að vera hjartnæm. Uppistand Tónleikarnir voru engu að síður drepfyndnir. Þau Guðrún og Jón reyttu af sér brandarana á milli laga og andrúmsloftið minnti stundum meira á uppistand tveggja vina sem höfðu fyrir tilviljun tekið með sér hljóðfæri. Jón var ötull í spjallinu, kastaði fimm boltum upp í loftið í einu, á meðan Guðrún beið róleg eftir rétta augnablikinu til að grípa einn þeirra og henda honum út í sal. Skemmtilegasta uppátækið var líklega þegar Jón tók upp á því að bítboxa. Slíkt er yfirleitt ávísun á óþægilega þögn hjá áheyrendum þegar fullorðinn maður ákveður að herma eftir trommusetti með raddfærunum. Hér gekk það hins vegar furðu vel og braut skemmtilega upp dagskrána. Reynir var svo sterka þögla týpan sem aðallega lét tónana tala — og hvílíkir tónar — en húmorískur svipurinn hans, að hluta til falinn á bak við dökk gleraugu, skapaði hnyttinn kontrapunkt. Samsöngur Á aðgöngumiðanum stóð að allir myndu „fara ögn hamingjusamari út eftir þessa tónleika.“ Það rættist. Listafólkið fékk áhorfendur til að taka undir í völdum lögum og það skilaði sér í líflegri stemningu. Samsöngur áhorfenda getur á stundum hljómað eins og bilað ferðaútvarp, en hér urðu raddir Bæjarbíós að eðlilegum og hlýjum hluta af flutningnum. Sambandið á milli flytjenda og fólks var í rauninni fullkomið, og skiptu þá hnökrar hér og þar litlu máli. Niðurstaða: Ef eitthvað sannaðist í Bæjarbíói þetta kvöld, þá er það að andstæður dragast ekki bara hvor að annarri, heldur geta þær skapað skemmtilega og ferska dýnamík þrátt fyrir bersýnilega galla. Stemningin endurspeglaði þessa spilagleði. Samsöngur áhorfenda virkaði vegna þess að listamennirnir höfðu áunnið sér traust salarins með tilfinningaþrungnum og einlægum tónlistarflutningi, og ekki síst skemmtilegri sviðsframkomu.
Gagnrýni Jónasar Sen Tónlist Tónleikar á Íslandi Hafnarfjörður Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira